Sjúkranuddarar
Réttur til að kalla sig sjúkranuddara og starfa sem slíkur hér á landi, er skilgreindur í reglugerð nr. 1128/2012 um menntun, réttindi og skyldur sjúkranuddara og skilyrði til að hljóta starfsleyfi. Reglugerðin er sett samkvæmt lögum nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn.
Starfsleyfi
Samkvæmt reglugerðinni skal veita starfsleyfi:
- Umsækjanda sem lokið hefur námi í sjúkranuddi frá menntastofnun sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og af heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.
- Umsækjanda sem lokið hefur prófi í sjúkranuddi í EES-ríki eða í Sviss. Um þá gildir reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011.
- Umsækjanda sem lokið hefur sambærilegu prófi frá viðurkenndri menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað að fenginni umsögn Félags íslenskra sjúkranuddara og Sjúkranuddarafélags Íslands.
Eyðublað fyrir umsókn um starfsleyfi
Fylgiskjöl
- Umsækjendur sem stundað hafa nám innan EES eða í Sviss þurfa, auk staðfests ljósrits af prófskírteini að skila inn:
- Staðfestu ljósriti af þarlendu starfsleyfi (ef það er til staðar).
- Staðfestu ljósriti af vegabréfi.
- Upplýsingum um sviptingu, takmörkun, afturköllun starfsleyfis eða önnur slík viðurlög vegna alvarlegra brota í starfi eða mistaka (Letter of Good Standing). Gögn mega ekki vera eldri en þriggja mánaða.
- Vottorði frá lögbæru stjórnvaldi í landi sem gaf út vitnisburð um formlega menntun og hæfi sem staðfestir að nám viðkomandi uppfylli skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011 (Letter of Confirmity). Stundum eru upplýsingar í þessum lið og liðnum á undan í einu skjali sem kallað er Certificate of Current Professional Status (CCPS).
- Umsækjendur sem stundað hafa nám utan EES og Sviss þurfa að auki að skila inn staðfestu afriti umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðningarsamningi, vottorði um íslenskukunnáttu og námslýsingu á íslensku eða ensku.
Útfylltar umsóknir um starfsleyfi þarf að undirrita og senda Embætti landlæknis ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Embætti landlæknis, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Umsókn um vottorð vegna starfsleyfis má senda Embætti landlæknis í pósti, símbréfi eða í tölvupósti á mottaka@landlaeknir.is
ATH. Gildistími slíkra vottorða er hámark þrír mánuðir frá útgáfudegi þeirra.
Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.
Síðast uppfært 04.02.2013
