Landlæknisembættið- Lyfjagjafir í skólum

Tilmæli landlæknis frá 01/1999

Í flestum skólum eru einhver börn sem þurfa að taka inn lyf á skólatíma. Samkvæmt könnun Landlæknisembættisins í mars 1999 og Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur í sama mánuði er algengt að um 5 % barna þurfi að taka lyf á skólatíma.

Í engum tilvikum getur barn borið ábyrgð á lyfjatökunni. Ábyrgðin er foreldra en skólahjúkrunarfræðingar og starfsmenn skóla aðstoða barnið við lyfjatökuna.

Landlæknisembættið beinir þeim tilmælum til heilsugæslu í skólum og forráðamanna skóla að eftirfarandi reglum verði fylgt varðandi lyfjagjafir í skólum.

Læknar skulu leitast við að haga lyfjagjöfum þannig að börn þurfi að taka sem minnst af lyfjum á skólatíma.

Hjúkrunarfræðingar sem starfa í skólum skulu hafa upplýsingar um allar lyfjagjafir barna í skólunum. Nemendur skulu ekki fá önnur lyf í skólanum en þau sem á þau hefur verið ávísað af lækni. Því skulu börn í engum tilvikum fá lyf, ekki heldur lausasölulyf, nema þeim hafi verið ávísað á barnið af lækni.

Foreldrum/forráðamönnum ber að afhenda hjúkrunarfræðingi þau lyf sem börn eiga að fá í skólanum. Skal hjúkrunarfræðingur kvitta fyrir móttöku þeirra, tegund og magni. Börn skulu í engum tilvikum vera sendiboðar með lyf.

Lyf barnsins skulu geymd í læstri hirslu í vörslu hjúkrunarfræðings. Slíkur lyfjaskápur skal vera staðsettur þar sem aðstaða skólaheilsugæslu er. Í minni skólum þar sem aðstaða fyrir skólaheilsugæslu er lítil eða engin skulu lyfin geymd í læstri hirslu á heilsugæslustöð.

Samkomulag skal vera milli hjúkrunarfræðings og foreldris/forráðamanns um hve miklar lyfjabirgðir hjúkrunarfræðingi eru afhentar hverju sinni. Hjúkrunarfræðingi ber að láta foreldra/forráðamenn vita þegar þörf er á meiri lyfjum til skömmtunar.

Hjúkrunarfræðingar skulu skammta lyf fyrir hverja viku í lyfjabox. Á það jafnt við um lyf sem gefin eru reglulega og þau sem gefin eru eftir þörfum s.s. migrenelyf. Hjúkrunarfræðingur skammtar slík lyf einnig í lyfjabox barnsins.

Lyfjaboxin skulu geymd í læstum skáp. Er það ákvörðun skólastjórnenda hvar hann er staðsettur. Mjög fáir starfsmenn skulu hafa aðgang að skápnum og skal það skráð hverjir það eru.

Tímasetningu lyfjagjafar skal háttað þannig að hún trufli sem minnst kennslu. Hjúkrunarfræðingar skulu því meta hvenær hentugast er fyrir hvert barn að fá sína lyfjagjöf, miðað við stundaskrá, og hafa samráð við þann lækni sem ávísaði lyfinu ef vafi um réttmæti tímasetningar kemur upp.

Hjúkrunarfræðingur sér um lyfjagjafir í skólum sé þess nokkur kostur. Ef því verður ekki við komið semur skólastjóri í samráði við nemendaverndarráð við ákveðinn aðila innan skólans um afhendingu lyfjanna. Um getur verið að ræða ýmsa aðila s.s. ritara, símavörð, skólaliða, starfsmann skóla, umsjónarmann skóla, stuðningsfulltrúa og kennara. Það er ákvörðun skólans hvort öll lyfjagjöf sé á hendi eins aðila eða fleiri í skólanum en reynt skal að hafa þann hátt á að einn aðili innan skólans sjái um afhendingu lyfja.

Börn skulu í flestum tilvikum koma til viðkomandi aðila og sækja lyfið. Ef barn gleymir slíku ber þeim sem hefur ábyrgð á að koma lyfinu til barnsins að hafa samband við kennara til að minna barnið á. Ekki þykir ráðlegt að gengið sé milli stofa með lyf, þótt það geti verið réttlætanlegt í einhverjum tilvikum.

Hjúkrunarfræðingur fer yfir lyfjaboxin eftir hverja viku og athugar hvort einhverju sé ábótavant. Hann metur þá jafnframt og skráir þau lyf sem gefin hafa verið eftir þörfum. Börn skulu ekki hafa nein lyf undir höndum í skólanum nema í algjörum undantekningartilvikum. Slíkar lyfjagjafir geta t.d. verið insulingjafir sem barnið sér sjálft alfarið um.

Í ferðum utan skóla skal skólastjóri semja við ákveðinn aðila sem fylgir börnunum um að hafa umsjón með lyfjagjöfum barnanna. Einungis skal hafa meðferðis fyrir þann dag/daga sem áætlað er að vera í burtu. Hjúkrunarfræðingar skulu skammta lyfin í box og skal skólastjóri láta hjúkrunarfræðinga vita þegar slíkar ferðir eru fyrirhugaðar.

Ábyrgð þeirra er deila út lyfjum til barna í skólum nær einvörðungu til þess að lyfið sé gefið á réttum tíma en ekki til hugsanlegra aukaverkana eða annarra afleiðinga sem lyfjagjöfin kann að hafa.

Þeir sem annast lyfjadreifingu í skólum skulu fá lágmarksfræðslu um meðhöndlun lyfja og skulu heilbrigðisyfirvöld skipuleggja slíka fræðslu í samráði við skólayfirvöld og stéttarfélög viðkomandi aðila.


Landlæknisembættið maí 1999.

Uppfært 5. nóvember 2008