Kerfisbundin úttekt á meðferð við þunglyndi sem skiptist í 3 hefti á sænsku. Ágrip (30 bls.) er aðgengilegt á ensku. Hefti 1 er 506 síður og nær til sögu, faraldsfræði, greiningar og meðferðar í bráðasjúkdómi og erfiðustu tilvikum auk tilraunameðferðar. Hefti 2 535 síður innheldur kafla um lyfjameðferð hjá sjúklingum með aðra sjúkdóma, langtímameðferð, rafmagns- og ljósameðferð og meðferð með Jóhannesarurt. í hefti 2 er einnig fjallað um greiningu í heilsugæslu, skimun, meðferð aldraðra, meðferð barna og unglinga, meðferð á bráðri maníu og heilsuhagfræði þunglyndismeðferðar.  Hefti 3 er 387 síður og tekur á "psykologisk behandling" þunglyndis.