Leiðbeiningar sem birtust 28 júní 2004 eru 154
blaðsíður og fjalla um greiningu og meðferð á meltingarónotum og
brjóstsviða (Dyspepsia and Heartburn). Tekið er á algengustu vandamálum og
gefnar ráðleggingar til almennings og heilbrigðisstarfsfólks um hvað er til
ráða. Hvernig er greint milli mismunandi sjúkdóma og hvenær er þörf á
ítarlegum rannsóknum. Hvað virkar og hvað ekki í meðferð byggt á
gagnreyndri læknisfræði. Sérstaklega er síðan tekið á tengslum
meltingarsjúkdóma og notkunar gigtarlyfja (bólgueyðandi lyfja - NSAID) og
hvernig minnka má þá hættu.