Tvíhverf lyndisröskun:
Meðhöndlun barna, táninga og fullorðinna í heilsugæslu og hjá sérfræðingum.
Bipolar disorder. The Management of bipolar disorder in
adults, children and adolescents, in primary and secondary care. (CG38)
NICE. July 2006. http://www.nice.org.uk/page.aspx?o=CG38
Útgefið af National Institute for Clinical Excellence
(NICE) 26. júlí 2005
Samantekt leiðbeininganna fyrir heilbrigðisstarfsfólk, 76
bls.
Bæklingur ætlaður sjúklingum, aðstandendum og almenningi,
28 bls.
Leiðbeiningarnar eru unnar í samvinnu við National
Collaborating Centre for Mental Health (NMCCMH) http://www.bps.org.uk/publications/core/core_home.cfm
Stutt samantek
á innihaldi leiðbeininganna
Í leiðbeiningunum er fjallað um m.a. hvar meðferð er
heppilegust í ljósi alvarleika sjúkdómsins og hvaða þjónusta ætti að vera í
boði.
Áhersla er lögð á að oft er um vangreiningu að ræða og að
mörg ár geta liðið frá því vart verður fyrstu einkenna þar til rétt greining
liggur fyrir.
Tekið er á greiningu, bráðameðferð, langtimameðferð og
eftirliti á líkamlegri og andlegri heilsu.
Sérstaklega er fjallað um meðferð þungaðra kvenna og
þeirra sem áætla þungun.
Vakin er athygli á hvar upplýsingar eru af skornum
skammti (t.d. sjúklingar <18 ára og þeir sem eru >65 ára og meðferð á
þeim sem hafa tvíhverfa lyndisröskun af tegund II þar sem manía er ekki
greiningarskilmerki) og á hvaða sviðum góðar rannsóknir vantar.
Auk hefðbundinna kafla um greiningu, rannsóknir og
meðferð a er sérstaklega fjallað um:
Gæðamælingar og hvernig bæta megi gæði þjónustunnar (sjá viðauka
C bls. 72 í leiðbeiningunum).
Endurskoðun er komin undir niðurstöðu úr reglubundinni
(eftir 2 og 4 ár) heimildaleit.
Tengt efni:
Violence: the short-term management of disturbed/violent
behaviour in in-patient psychiatric settings and emergency departments. NICE
clinical guideline no. 25 (2005). www.nice.org/CG025
Guidance on the use of electroconvulsive therapy. NICE
technology appraisal guidance no. 59 (2003). www.nice.org/TA059
Leibeiningar frá SIGN um sama efni:
Bipolar affective disorder. SIGN. Maí 2005.
http://www.sign.ac.uk/guidelines/published/numlist.html