Leiðbeiningar þessar eru unnar
sem kerfisbundið yfirlit rannsókna er taka til frumforvarna, greiningar,
meðferðar og margra annarra þátta svo sem endurhæfingar. Vinnan er
ítarleg og vönduð og skiptist í tvö bindi þar sem fyrra bindi
er meginmál upp á 361 bls. (50 bls ágrip) en seinna bindi er 229 bls.og f.o.f.
sönnunartöflur og yfirlit rannsókna og stuðningur fyrir samsvarandi kafla í
fyrra bindi.