86 blaðsíðna leiðbeiningar þar sem fjallað er um skoðun rannsóknum og meðferð á hinum ýmsu axlarmeinum svo sem frosinni öxl, "rotator cuff sjúkdómum" og axlarliðhlaup (anterior / posterior) í fyrsta sinn og endurtekið.  Einnig er fjallað um áverka sem ná til "acromioclavicular" og "sternoclavicular" liða. Leiðbeiningarnar eru byggðar á bestu vísindalegu þekkingu og einstaka ráðleggingar stigaðar í samræmi við gæði og magn upplýsinga sem að baki liggja. Auk örstutts ágrips er hægt að nálgast "powerpoint" erindi me 40 skyggnum um efnið og 59 blaðsíðna skjal um aðferðafræðina og nákvæma útlistun á heimildaleit og leitarorðum.