Lungnakrabbamein. Greining og meðhöndlun
Lung Cancer – The diagnosis and treatment of lung
cancer (CG24)
http://www.nice.org.uk/page.aspx?o=244008
Útgefið af National Institute for Clinical
Excellence (NICE) 23. febrúar 2005
Leiðbeiningar þessar eru þær fyrstu sem NICE vinnur
í samstarfi við Scottish Intercollegiate Guideline Network (SIGN). Samvinnan
náði til heimildaleitar og mats á þeim óhemju fjölda rannsókna sem liggja til
grundvallar leiðbeiningunum. Hvorri stofnun
var hins vegar í sjálfsvald sett hvaða ráðleggingar hún gæfi í kjölfar
þessarar grunnvinnu
Samantekt leiðbeininganna fyrir heilbrigðisstarfsfólk,
41 bls.
Bæklingur ætlaður sjúklingum, aðstandendum og
almenningi, 42 bls.
Heildarleiðbeiningar (214 bls.) með 596 heimildum og
viðauki sem fjallar á kerfisbundinn hátt um þær rannsóknir sem liggja til
grundvallar ráðleggingunum (351 bls.).
Heildarleiðbeiningarnar frá NICE fjalla um greiningu
og meðferð á lungnakrabbameinum. Þetta
eru ítarlegar leiðbeiningar (107 bls. og 351 bls viðauki). Einnig var gefin út samantekt heildarleiðbeininganna,
en þar er þeim skipt upp annars vegar í meðferð og greiningu barna og fullorðinna hins vegar. Styttri útgáfan eða
samantektin er sett upp á skýran hátt undir kaflaheitunum:
~
Aðgengi að þjónustu
~
Greining
~
Stigun
~
Skurðaðgerðir sem miða að lækningu við „ekki
smáfrumukrabbameini“ (non-small-cell lung cancer, NSCLC).
Meginskilaboð leiðbeininganna
Í fréttatilkynningu með leiðbeiningunum var m.a.
lögð áhersla á að:
Almenningur þarf að gera sér ljóst að óskýrð ný eða breytt einkenni, s.s. hósti
eða mæði, þarf að rannsaka. Ef sjúkdómurinn greinist fyrr og farið er eftir
ráðleggingunum í leiðbeiningunum má væntanlega bjarga mannslífum og jafnvel
þegar lækning er ekki möguleg er sjúklingum veitt besta meðferð sem völ er á.
Heimilislæknar þurfa að vera vel vakandi fyrir því að vísa þeim sjúklingum
snemma í rannsókn sem hafa ósértæk einkenni eða viðvarandi hósta.
Í heildarleiðbeiningunum og styttri útgáfu er rétt að benda á að auk
hefðbundinna kafla um greiningu, rannsóknir og meðferð mismunandi tegunda
lungnakrabbameina er sérstaklega fjallað um:
Gæðamælingar og hvernig bæta megi gæði þjónustunnar
(sjá líka kafla 14 í heildarleiðbeiningunum).
Heildarleiðbeiningunum er
skipt í 15 kafla með umfjöllun um m.a.:
·
Greiningu og stigun lungnakrabbameina (Kaflar 4 og
5).
·
Meðferð (skurðaðgerðir, geislameðferð, lyfjameðferð
og önnur meðferð) við „smáfrumukrabbameini“ (NSCLC) (Kaflar 6 til 10).
Viðaukar
Auk þessa er mikilvægt að benda á að
heildarleiðbeiningunum fylgir viðauki (351 bls) sem sækja þarf sérstaklega á vefinn.
Upplýsingar fyrir sjúklinga með lungnakrabbamein,
aðstandendur og almenning eru í 42 síðna sérútgáfu. Þar er m.a. fjallað um
upplýsingagjöf til sjúklinga og aðstandenda og atriði í upplýsingagjöf sem
stuðla að bættri meðferð og upplýstri ákvarðanatöku.
http://www.nice.org.uk/page.aspx?o=244025
Tengt efni
Improving supportive and palliative care for adults with cancer - the manual.
Guidance on cancer services (2004). www.nice.org.uk/csgsp
Thomas, K. The Gold Standards Framework in community
palliative care. European Journal of Palliative Care 10: 3, 113- 115. 2003.
(See also: The Macmillan Gold Standards Framework Programme: www.macmillan.org.uk or www.modern.nhs.uk/cancer
Leibeiningar frá SIGN um sama efni:
Lung cancer - Management of patients with lung cancer.
SIGN Febrúar 2005.
http://www.sign.ac.uk/guidelines/published/numlist.html