Háþrýstingur, meðferð fullorðinna í heilsugæslu


Umsögn

Hypertension – management of hypertension in adults in primary care
http://www.nice.org.uk/page.aspx?o=217968
Útgefið af National Institute for Clinical Excellence (NICE) 25. ágúst 2004. Heildarleiðbeiningar 261 blaðsíða.
Samantekt 16 blaðsíður og leiðbeiningar fyrir sjúklinga 36 blaðsíður.

 

Stutt samantekt

Heildarleiðbeiningarnar frá NICE fjalla um greiningu og meðferð í heilsugæslu á viðvarandi háþrýstingi hjá fullorðnum án þekktrar ástæðu. Leiðbeiningarnar leggja áherslu á að náin samvinna heilbrigðisstarfsmanna og sjúklinga sé undirstaða góðs árangurs í lækkun blóðþrýstings. Þannig má draga úr hættu á áföllum vegna hjarta- og æðasjúkdóma.

Leiðbeiningarnar eru mjög ítarlegar (261 bls.) en einnig er gefin út samantekt heildarleiðbeininganna, þar sem eru m.a. flæðirit um meðferð háþrýstings, leiðbeiningar um blóðþrýstingsmælingar, ráðleggingar um lífsstílsbreytingar og áhættumat m.t.t. hjarta- og æðasjúkdóma.

 

Lykilatriði leiðbeininganna

Í leiðbeiningunum er lögð sérstök áhersla á að sjúklingar sem mælast með hækkaðan blóðþrýsting (>140/90 mm/Hg) komi tvisvar í endurmælingu, þar sem leitast er við að mæla blóðþrýsting við kjöraðstæður (sjá leiðbeiningar NICE). Meta á heildaráhættu hjarta- og æðasjúkdóma hjá þeim sem greinast með háþrýsting með því að greina sykursýki og óeðlilegar blóðfitur. Staðfesta á skaða ef hann hefur orðið af völdum háþrýstings á marklíffæri. Einnig þarf að greina ef hækkaður blóðþrýstingur stafar af öðrum sjúkdómi, t.d. nýrnasjúkdómi, og vísa þá sjúklingum til sérfræðings í viðkomandi grein.

Áhersla er lögð á ráðgjöf um breytingu á lífsstíl (t.d. hætta reykingum, hollara mataræði, draga úr kaffidrykkju og alkóhólneyslu) við greiningu og síðan reglulega við endurkomur.

Lyfjameðferð á að bjóða eftirfarandi sjúklingum:

~         Þeim sem mælast endurtekið með blóðþrýsting >160/100 mmHg.

~         Sjúklingum með aukna áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum og með endurtekinn blóðþrýsting >140/90 mm/Hg.

Mælt er með að hefja lyfjameðferð með lágum skammti af tíasíði. Ef nauðsynlegt er skal bætt við beta-blokka sem öðru lyfi, nema sjúklingur sé í aukinni áhættu á sykursýki, þá er ráðlagt að bæta við ACE-hemli í staðinn. Sem þriðja lyfi er mælt með kalsíumgangaloka úr flokki díhýdrópýridínafleiða.

Þegar náðst hefur ásættanleg stjórnun á blóðþrýstingi er mælst til þess að sjúklingar komi árlega í eftirlit.  Sjúklingum sem hafa náð góðri stjórn á háþrýstingnum og eru ekki eru í aukinni hættu á hjarta- og æðasjúkdómi en óska eftir að draga úr eða hætta á lyfjameðferð má bjóða slíkt til reynslu í ákveðinn tíma.

 

Viðaukar
Sérstaklega er vakin athygli á Viðauka 2, en þar er samantekt á viðurkenndum klínískum leiðbeiningum um meðferð háþrýstings.

 

Upplýsingar til sjúklinga og aðstandenda

Upplýsingar til sjúklinga voru gefnar út um leið og heildarleiðbeiningarnar.