Flogaveiki: Greining og meðferð hjá börnum og
fullorðnum
The diagnosis and care of children and adults with
epilepsy
http://www.nice.org.uk/page.aspx?o=227586
Útgefið af NICE 27. október 2004
Heildarleiðbeiningar (397 bls.)
Samantekt fyrir börn (C)
og fullorðna (A), 20 bls. hvor.
Heildarleiðbeiningarnar frá NICE fjalla um
greiningu og meðferð á flogaveiki barna og fullorðinna bæði í heilsugæslu og á
sjúkrastofnunum. Þetta eru mjög
ítarlegar leiðbeinigar (397 bls.).
Einnig var gefin út samantekt heildarleiðbeininganna, en þar er þeim
skipt upp annars vegar í meðferð og greiningu barna en hins vegar
fullorðinna. Samantektin er sett upp á
mjög skematískan hátt með flæðiriti yfir greiningu, en einnig eru góðar töflur
yfir lyfin og hvaða lyf séu æskilegust við hverri tegund af flogaveiki og hver
beri að forðast. Þá eru einnig töflur yfir helstu aukaverkanir flogaveikilyfja.
Í fréttatilkynningu með leiðbeiningunum var m.a.
lögð sérstök áhersla á að sérfræðingur skoði alla sjúklinga þar sem grunur er
um flogaveiki, allir sjúklingar eigi ítarlega meðferðaráætlun (care plan) sem
sé samþykkt af þeim sem koma að meðferðinni,
meðferð sé endurskoða ekki sjaldnar en á 12 mánaða fresti og sjúklingur ásamt umönnunaraðilum skuli
vera þátttakendur í öllum ákvörðunum um meðferð flogaveikinnar.
Í heildarleiðbeiningunum er rétt að benda á að auk
hefðbundinna kafla um flokkun, greiningu, rannsóknir og meðferð mismunandi tegunda
flogaveiki er sérstaklega fjallað um:
a.
Gæðamælingar og hvernig bæta megi gæði
þjónustunnar.
b.
Upplýsingagjöf til sjúklinga og aðstandenda og
atriði í upplýsingagjöf sem stuðla að bættri meðferð og upplýstri
ákvarðanatöku.
c.
Meðhöndlun einstakra hópa, svo sem kvenna á
barneignaraldri, þungaðra kvenna, aldraðra og fleiri.
d.
Svið í meðferð flogaveiki þar sem betri rannsóknir
vantar
Auk þessa er mikilvægt að benda á að
heildarleiðbeiningunum fylgja nokkrir viðaukar sem hlaða þarf niður sérstaklega
(umfram þessar 397 bls):
Appendix A – Differential diagnosis of epilepsy (31 bls)
Appendix B – Drug tables (13 bls)
Appendix C – Guidelines for status epilepticus (6 bls)
Appendix D – Information for women with epilepsy (7
bls)
Appendix E – Key clinical questions (7 bls)
Appendix F – Evidence tables (48 bls)
Appendix G – Costs of epilepsy misdiagnosis (14
bls)
Appendix H – Prognosis for remission of
seizures (2 bls)
Upplýsingar til sjúklinga og aðstandenda þeirra
voru einnig gefnar út samtímis heildarleiðbeiningunum.