Sjóðir i vörslu Landlæknisembættisins
Tveir sjóðir eru í vörslu Landlæknisembættisins, Minningarsjóður Bergþóru Magnúsdóttur og Jakobs J. Bjarnasonar, og Jólagjafasjóður Guðmundar Andréssonar gullsmiðs. Styrkir eru veittir úr sjóðunum árlega og sér Landlæknisembættið um að auglýsa styrkina. Að öðru leyti lúta þeir sjálfstæðum stjórnum og á landlæknir sæti í þeim báðum.
Minningarsjóður Bergþóru Magnúsdóttur og Jakobs J. Bjarnasonar
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins er tilgangur hans:
- að styrkja kaup á lækninga- og rannsóknartækjum til sjúkrastofnana,
- að veita vísindamönnum í læknisfræði styrki til framhaldsnáms eða sjálfstæðra vísindaiðkana.
Rannsóknir á krabbameinssjúkdómum sitja að jafnaði fyrir um styrkveitingar.
Stjórn minningarsjóðsins skipa:- Geir Gunnlaugsson landlæknir
- Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins
- Sigurður B. Þorsteinsson læknir, fulltrúi læknadeildar HÍ
Jólagjafasjóður Guðmundar Andréssonar gullsmiðs
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins er tilgangur hans að veita styrki til þeirra verkefna sem stofnað er til í því augnamiði að bæta ummönnun barna og aldraðra sem langtímum dvelja á stofnunum hér á landi, svo sem að:- styrkja samtök og stofnanir sem annast aðhlynningu barna og aldraðra,
- veita námsstyrki til heilbrigðisstétta er gegna þessu hlutverki,
- veita rannsóknarstyrki til viðfangsefna sem þjóna þessum tilgangi.
- Geir Gunnlaugsson landlæknir, formaður
- Séra Magnús Guðjónsson, fyrrv. biskupsritari, fulltrúi Biskupsins á Íslandi,
- Ingvi Þorsteinsson náttúrufræðingur, fulltrúi Stórstúku Íslands.
Uppfært 29. september 2011