Erindi til embættis

Öll erindi sem þarfnast formlegrar afgreiðslu hjá embættinu, s.s. kvartanir vegna heilbrigðisþjónustu, þurfa að berast bréflega (þ.e. ekki með tölvupósti) og vera undirrituð með eigin hendi. Einnig þarf að koma fram kennitala og heimlisfang bréfritara.

Bréf má afhenda annaðhvort í afgreiðslu embættisins eða senda með pósti. Í samræmi við ákvæði stjórnsýslulaga eru öll formleg erindi afgreidd eins fljótt og unnt er. 

Þegar erindi berast vegna kvartana  fær sendandi bréflega staðfestingu um að erindið hafi verið móttekið. Sjá nánar á síðunni Kvartanir

Óformlegri fyrirspurnir og beiðnir um upplýsingar má senda í tölvupósti á netfangið mottaka@landlaeknir.is.

Þeim er þá beint til viðkomandi aðila innan embættisins og svarað í tölvupósti eins fljótt og kostur er svo sem stjórnsýslulög gera ráð fyrir.

              

Uppfært 4. júlí 2011




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli