Um embættið

Sú breyting var gerð með lögum nr. 28/2011, sem gengu í gildi 1. maí 2011, að starfsemi Lýðheilsustöðvar var felld undir embætti landlæknis. Með lögunum fékk embætti landlæknis víðtækari verkefni en áður og eru nú öll verkefni á sviði forvarna, heilsueflingar og lýðheilsu á ábyrgð embættisins auk þeirra verkefna sem fyrir voru.

 Ljósmynd birt með leyfi Ríkisendurskoðunar

Landlæknisembættið hefur aðsetur að Barónsstíg 47 þar sem Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
var áður til húsa.
Ljósmynd: Ríkisendurskoðun

Markmið laganna er að stuðla að heilbrigði landsmanna, m.a. með því  að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og stuðla að því að lýðheilsustarf og heilbrigðisþjónusta byggist á bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma.

Meginhlutverk embættisins samkvæmt hinum nýju lögum er fjórþætt, ráðgjöf, fræðsla, eftirlit og upplýsingasöfnun. Lagaákvæði um hlutverk embættisins er einnig að finna í sóttvarnalögum og í lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007.

Í lögum nr. 28/2011 eru hlutverk embættisins talin upp og eru þessi þau helstu

  • Að veita ráðherra og öðrum stjórnvöldum, fagfólki og almenningi ráðgjöf og fræðslu.
  • Að annast forvarna- og heilsueflingarverkefni.
  • Að efla lýðheilsustarf og meta reglulega árangur af því starfi.
  • Að vinna að gæðaþróun.
  • Að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsfólki.
  • Að hafa eftirlit með lyfjaávísunum og fylgjast með lyfjanotkun landsmanna.
  • Að veita starfsleyfi til löggiltra heilbrigðisstétta.
  • Að sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu.
  • Að bera ábyrgð á framkvæmd sóttvarna, sbr. sóttvarnalög.
  • Að safna og vinna upplýsingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu.
  • Að stuðla að því að menntun heilbrigðisstarfsmanna sé í samræmi við kröfur á hverjum tíma og styðja við menntun á sviði lýðheilsu.
  • Að stuðla að rannsóknum á starfssviðum embættisins.

Samkvæmt sóttvarnalögum nr. 19/1997  starfar sóttvarnalæknir við embættið. Hann ber ábyrgð á framkvæmd sóttvarna og  almennum og opinberum sóttvarnaráðstöfunum, þar með talið ráðstöfunum vegna heilsufarslegra afleiðinga eiturefna og geislavirkra efna. Verksvið sóttvarnalæknis er aðallega eftirfarandi:

  • Að skipuleggja og samræma sóttvarnir og ónæmisaðgerðir um land allt, m.a. með útgáfu leiðbeininga um viðbrögð við farsóttum.
  • Að halda smitsjúkdómaskrá til að fylgjast með útbreiðslu smitsjúkdóma.
  • Að halda skrá um notkun manna á sýklalyfjum sem valdið geta ónæmi sýkla gegn sýklalyfjum.
  • Að koma á framfæri upplýsingum um útbreiðslu smitsjúkdóma, innanlands sem utan, til lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna.
  • Að vera læknum og öðrum, sem við sóttvarnir fást, til ráðgjafar.
  • Að hafa umsjón með forvörnum gegn smitsjúkdómum, m.a. með upplýsingum og fræðslu til almennings.


Uppfært 2. ágúst 2011




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli