Starfsleyfi

Starfsréttindi heilbrigðisstétta

Heilbrigðisstéttir njóta lögverndaðs starfsheitis skv. lögum nr. 24/1985 . Frá og með 1. apríl 2008 þarf starfsleyfi landlæknis til að starfa hér á landi sem starfsmaður í heilbrigðisstétt. Nánar er kveðið á um skilyrði fyrir veitingu starfsleyfa í lögum og reglugerðum um starfsréttindi heilbrigðisstétta.

Eyðublöð fyrir umsóknir um starfsleyfi heilbrigðisstétta, sérfræðingsleyfi og vottorð um starfsleyfi er hægt að nálgast á vefsíðum fyrir viðkomandi heilbrigðisstéttir hér fyrir neðan. Þar eru einnig leiðbeiningar og upplýsingar um gögn sem þurfa að fylgja umsóknum, eftir því sem við á um hverja stétt.

Þeir sem hyggjast hefja rekstur í heilbrigðisþjónustu þurfa að tilkynna það til Landlæknisembættisins á sérstöku eyðublaði.    Tilkynning um rekstur.

ATH. Útfylltar umsóknir um starfsleyfi heilbrigðisstétta þarf að undirrita og senda Landlæknisembættinu ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest, en gögnin fást staðfest hjá viðkomandi skóla (ef nám var stundað á Íslandi), hjá Landlæknisembættinu, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Gjald fyrir starfsleyfi er kr. 8.300.- en kr. 2.000.- fyrir vottorð vegna starfsleyfis. Við afgreiðslu leyfis er greiðsluseðill sendur umsækjanda.

Nánari upplýsingar hjá Landlæknisembættinu veitir Lisa Kjartansdóttir.

_______________________________________________________________________________

   Heilbrigðisstéttir

Áfengis- og vímuefnaráðgjafar  Læknar Sjóntækjafræðingar
Félagsráðgjafar  Læknaritarar Sjúkraflutningamenn
Fótaaðgerðafræðingar Matartæknar  Sjúkraliðar
Geislafræðingar Matvælafræðingar Sjúkranuddarar
Hjúkrunarfræðingar Náttúrufræðingar  Sjúkraþjálfarar
Hnykkjar  Næringarfræðingar  Stoðtækjafræðingar
Iðjuþjálfar Næringarráðgjafar  Talmeinafræðingar 
Lífeindafræðingar  Næringarrekstrarfræðingar Tannfræðingar
Ljósmæður Osteópatar  Tannlæknar
Lyfjafræðingar Sálfræðingar Tanntæknar 
Lyfjatæknar  Þroskaþjálfar
   

Uppfært 12. janúar 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli