Smit og sóttvarnir

Smásjármyndir af veirum Smásjármyndir af bakteríum

 

Með breytingum á sóttvarnalögum sem Alþingi ákvað þann 17. mars 2007 voru sett ákvæði þess efnis að sóttvarnir skyldu ekki einungis ná til þess að vernda almenning gegn smitandi sjúkdómum heldur einnig gegn öllum óvæntum atburðum sem ógna heilsu manna (health threats). Er þar einkum átt við eiturefni og geislavirk efni. Hugtakið sóttvarnir hefur því víðtækari merkingu en áður en þar er fyllilega í samræmi við íslenskt mál.

Sóttvarnalögin fjalla fyrst og fremst almennt um viðbúnað gegn farsóttum og annarri vá og viðbrögð sem nauðsynlegt er að grípa til við sóttvarnir. Þau taka til:

Almennra sóttvarnaráðstafana með ákvæðum um skyldur einstaklinga, lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna, heilbrigðisfulltrúa, heilbrigðisnefnda og dýralækna.

Opinberra sóttvarnaráðstafana vegna hættu á farsóttum og öðrum sóttum innanlands, til eða frá landinu og um aðgerðir vegna hættu á útbreiðslu smits frá einstaklingum, hættulegra sýkla, eiturefna og geislavirkra efna, ónæmisaðgerða, einangrunar smitaðra, sótthreinsunar, afkvíunar byggðarlaga eða landsins alls, lokunar skóla eða samkomubanns.

Sóttvarnalæknir ber ábyrgð á sóttvörnum í landinu og sér um að haldin sé smitsjúkdómaskrá sem tekur til smitsjúkdóma, tiltekinna sýkla, eiturefna og geislavirkra efna og bólusetninga. Þá skipuleggur hann og samræmir bólusetningar um land allt í samstarfi við starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar.

Ráðherra skipar sérstaka samstarfsnefnd til að afla nauðsynlegra gagna og hafa yfirumsjón með nauðsynlegum aðgerðum til að meta og uppræta smithættu eða hættu sem stafar af dýrum, matvælum, starfsemi, vatni, skolplögnum, loftræstingu eða öðru í umhverfinu sem getur dreift smitnæmum sjúkdómsvöldum, eiturefnum eða geislavirkum efnum sem ógna heilsu manna. Í nefndinni sitja sóttvarnalæknir, sem jafnframt er formaður, tveir fulltrúar tilnefndir af Matvælastofnun og skal annar vera sérfróður um matvælaöryggi en hinn um smitsjúkdóma í dýrum, einn frá Geislavörnum ríkisins og tveir frá Umhverfisstofnun og skal annar vera sérfróður um matvælaöryggi en hinn um eiturefni.

Sóttvarnalæknir kemur upplýsingum og fræðslu um sóttvarnir til heilbrigðisstarfsmanna og almennings. Sóttvarnalæknir er tengiliður Íslands við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO). Samkvæmt nýrri alþjóðaheilbrigðisreglugerð sem gildi tók 15. júní 2007 skal tilkynna til sóttvarnalæknis alla atburði sem ógnað geta alþjóðasamfélaginu hvort sem þeir eiga rætur að rekja til Íslands eða til annarra landa.

Sóttvarnalæknir er ritari sóttvarnaráðs sem ráðherra skipar. Ráðið mótar stefnu í sóttvörnum og er ráðherra til ráðgjafar um aðgerðir til varnar útbreiðslu smitsjúkdóma. Ráðið hefur aðsetur hjá embætti landlæknis. 

Uppfært 5. desember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli