Réttindi sjúklinga
Lög um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, tóku gildi 1. júlí 1997. Grunnhugsunin í lögunum er að sjúklingur á rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er unnt að veita og skal þá taka mið af ástandi hans, horfum og bestu þekkingu sem völ er á á hverjum tíma.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hefur gefið út eftirtalin rit um réttindi sjúklinga:
- Kynntu þér réttindi þín. Upplýsingabæklingur um réttindi sjúklinga (PDF) (Útg. desember 1999).
- Lög um réttindi sjúklinga. Upplýsingarit fyrir starfsfólk í heilbrigðisþjónustu (PDF) (Útg. mars 2000).
Uppfært 5. febrúar 2009