Vistunarmatsskrá

Ábyrgðaraðili:  Landlæknir

 

Vinnsluaðili:  Landlæknir og Stiki ehf.

 

Tilgangur:  Að miðla upplýsingum um mat á vistunarþörf einstaklinga á milli vistunarmatsnefnda sem framkvæma matið og stofnana sem taka við einstaklingum til vistunar í hjúkrunar- eða dvalarrými.  Skránni er einnig ætlað að veita yfirsýn yfir fjölda á biðlistum eftir landssvæðum, aldri, kyni og þjónustuþörf.

 

Innihald:  Félags- og heilsufarsupplýsingar um aldraða sem óska eftir vist á öldrunarstofnun frá og með árinu 1992. 

 

Tímabil:  Rafræn skrá frá og með 1992.  Skráð er vistunarmat fyrir um 1000 einstaklinga á ári.

 

Uppruni gagna:  Vistunarmatsnefndir í hverju heilbrigðisumdæmi, sem gera matið, skrá viðeigandi upplýsingar rafrænt beint í vistunarmatsskrá.

 

Skráningaratriði:  Dagsetning mats, félagslegar aðstæður, líkamlegt og andlegt atgervi, færni, sjúkómar, stigafjöldi úr mati, flokkun á þörf og óskir um vistunarstað.

 

Úrvinnsla og birting:  Reglubundin úrvinnsla sem nýtt hefur verið til eftirlits með biðlistum og framkvæmd vistunarmats.  Fyrirhugað er að birta reglulega úrvinnslu á vef landlæknis.

 

Saga:  Allar umsóknir um vistunarmat aldraðra hafa verið færðar inn í rafræna Vistunarmatsskrá frá 1. janúar 1992.  Fyrstu árin var gagnasafnið hýst hjá SKÝRR hf en frá árinu 2003 hefur Stiki ehf hýst og rekið skrána samkvæmt samningi þar um.  Ábyrgð á Vistunarmatsskrá var flutt frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti til landlæknis síðla árs 2006.

 

 

Uppfært 6. janúar 2009




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli