Viðbrögð við kvörtunum
Það er mannlegt að verða á mistök. Í heilbrigðisþjónustu verða mönnum á mistök eins og í öðrum störfum. Þetta gildir jafnt á Íslandi sem og í öðrum löndum. Íslenska heilbrigðiskerfið hefur á að skipa dugmiklu og vel menntuðu fagfólki, sem hefur átt sinn þátt í því að skapa góðan árangur lækninga og meðferðar. Þessi góði árangur endurspeglast í heilbrigðistölfræði og er sambærilegur við það sem best gerist.
Í þeim tilvikum þegar ekki tekst vel til í meðferð sjúklings er nauðsynlegt að hægt sé að rannsaka atvik málsins af sjálfstæðum og óháðum aðila og kveða upp úr um það hvort faglega rétt var unnið af hálfu heilbrigðisstarfsfólks. Í því sambandi skiptir höfuðmáli að tryggja samvinnu allra málsaðila við að upplýsa málsatvik.
Samkvæmt lögum um landlækni nr. 41/2007 ber landlækni að sinna kvörtunum er varða samskipti almennings og veitendur heilbrigðisþjónustunnar og er hlutverk landlæknis faglegs eðlis. Í rannsóknum Landlæknisembættisins er reynt að komast að niðurstöðu um það hvort sjúklingur fékk góða og faglega rétta meðferð. Ekki er leitað svara við því hvort um bestu mögulegu meðferð var að ræða eða hvort atvik kunni að vera bótaskylt.
Það er öllum heilbrigðisstarfsmönnum þungbært að takast á við kvörtun sjúklings um ónóga þekkingu eða ófullnægjandi starfshætti. Miklu varðar að leitast við að upplýsa málið eftir bestu getu og í allri umfjöllun er mikilvægt að fagfólk gæti þess að einskorða sig, eins og kostur er, við faglegar staðreyndir málsins. Í erfiðum málum getur þurft að leita sér stuðnings og ráðgjafar.
Innan sumra fagfélaga starfa hópar, sem hafa reynslu af stuðningsstarfi vegna kvartana um mistök í starfi og því sjálfgefið að leita aðstoðar og ráðgjafar þeirra. Einnig er hægt að leita eftir upplýsingum hjá starfsfólki Landlæknisembættisins. Mikilvægt er að gefa ekki út ótímabærar eða órökstuddar yfirlýsingar, t.d. ef eftir því er leitað af hálfu aðstandenda eða fjölmiðla á meðan mál er til rannsóknar, af tillitssemi við sjúkling og aðra sem málið varðar. Rannsókn mála tekur tíma og eðlilegt er að bíða niðurstöðu hennar.
Sjá einnig á þessum vef:
Uppfært 5. febrúar 2009