Kvartanir

Landlæknir hefur eftirlit með starfi og starfsaðstöðu heilbrigðisstétta. Landlækni er skylt að sinna kvörtunum er varða samskipti almennings við veitendur heilbrigðisþjónustu, sbr. 12. gr. laga um landlækni nr. 41/2007.


Fólk hefur ýmsa möguleika til að kvarta yfir heilbrigðisþjónustu eða leita réttar síns og eru sumir þeirra bundnir í lög, einkum lög um landlækni nr. 41/2007 og lög um réttindi sjúklinga nr. 74/1997. Leiðirnar eru miklu fleiri en fólk gerir sér grein fyrir í fljótu bragði eins og sést á þessu yfirliti um það hvert hægt er að beina kvörtun eða kæru:

  1. Beint til þess heilbrigðisstarfsmanns sem meðhöndlaði sjúklinginn.
  2. Til viðkomandi yfirlæknis.
  3. Til stjórnar stofnunar eða framkvæmdastjóra.
  4. Til landlæknis.
  5. Til sjúklingatryggingar.
  6. Til dómstóla.

Hægt er að kæra málsmeðferð landlæknis (skv. leið nr. 4) til heilbrigðisráðherra.


Kvartanir vegna faglegrar starfsemi heilbrigðisstétta
Landlæknisembættið tekur við kvörtunum sjúklinga er varða faglega starfsemi innan heilbrigðisþjónustu. Með faglegri starfsemi er einkum átt við skoðun, rannsóknir, meðferð og/eða eftirlit af hálfu heilbrigðisstarfsmanna, brot á þagnarskyldu, vottorðagjöf, meðferð trúnaðarupplýsinga, upplýsingagjöf til sjúklings og aðgengi að sjúkraskrá.

Landlæknisembættið er sjálfstæður og óháður eftirlits- og rannsóknaraðili sem leitast við að leiða fram niðurstöðu varðandi það hvort unnið var faglega rétt í máli sjúklings af hálfu heilbrigðisstarfsmanns eða hvort einhverju hafi verið áfátt í starfi heilbrigðisstarfsmanns miðað við viðurkennda þekkingu. Ekki er því tekin afstaða til þess hvort sjúklingur fékk bestu mögulegu meðferð. Landlæknisembættið ákveður ekki hvort atvik kunni að vera bótaskylt.

Aðrar kvartanir
Kvörtunum er varða þjónustu á heilbrigðisstofnun, eins og t.d. aðgengi að heimilislækni, biðlista sjúkrahúsa eða heimahjúkrun, skal beina til yfirstjórnar viðkomandi heilbrigðisstofnunar.

Kvörtunum er varða fjárhagslegan ágreining vegna heilbrigðisþjónustu skal beina til yfirstjórnar heilbrigðisstofnana eða úrskurðar- og samstarfsnefnda fagfélaga og Neytendasamtakanna, ef um er að ræða heilbrigðisþjónustu á einkastofum sérfræðinga.

Kvörtunum er varða ákvarðanir skv. lögum um almannatryggingar og félagslega aðstoð nr. 99 og 100/2007 skal beina til úrskurðarnefndar almannatrygginga, Vegmúla 3, 108 Reykjavík.

Umsókn um bætur
Umsókn um bætur vegna tjóns í tengslum við meðferð innan heilbrigðisþjónustunnar skal beina til Sjúkratrygginga Íslands, Laugavegi 114-116, 150 Reykjavík, ef um er að ræða tjónsatvik innan opinberrar heilbrigðisþjónustu.

Ef um er að ræða tjónsatvik sem varð á einkastofu læknis, tannlæknis eða annarra heilbrigðisstarfsmanna skal beina bótakröfu að tryggingafélagi viðkomandi sérfræðings.

Hvernig á að bera fram kvörtun til Landlæknisembættisins?
Kvörtun skal beina skriflega til Landlæknisembættisins, með formlegu bréfi (ekki í tölvupósti), þar sem málavöxtum er lýst nákvæmlega og kvörtunarefnið er skilgreint. Í bréfinu þarf að koma fram kennitala og heimilsfang þess sem telur á sér brotið.

Álitsgjöf Landlæknisembættisins er sjúklingi að kostnaðarlausu og ekki er nauðsynlegt að leita aðstoðar þriðja aðila, eins og t.d. lögfræðings, nema þegar sjúklingur er ekki fær um að annast málið sjálfur. Þá getur hann veitt aðstandanda, lögfræðingi eða öðrum umboðsmanni sínum skriflegt umboð til að fara með málið. 

Þegar um börn er að ræða geta forráðamenn sent inn kvörtun og einnig er tekið við kvörtunum frá börnum sem eru 16 ára og eldri. Mál eru að jafnaði ekki tekin til skoðunar nema tryggt sé að viðkomandi sé því samþykkur. Ef sjúklingur af einhverjum ástæðum treystir sér ekki til þess að skrifa embættinu er hægt að leita upplýsinga og aðstoðar í síma 510 1900.

Viðtalstími er mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, kl. 9:00–9:30.

Hverjir vinna úr kvörtunarmálum hjá Landlæknisembættinu?
Yfirlæknir kvartana- og kærumála er Kristján Oddsson yfirlæknir, en auk hans taka landlæknir og yfirhjúkrunarfræðingur við málum og vinna úr þeim. Ritari kvörtunarmála er Katrín Guðjónsdóttir læknaritari sem veitir allar nánari upplýsingar í síma 510 1900.

Hvernig er unnið úr kvörtunarmálum?
Eftir að kvörtun hefur borist er kvörtunarþola (lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni) sent bréf með upplýsingum um að kvörtun hafi borist ásamt afriti af kvörtunarbréfinu. Óskað er eftir sjónarmiðum hans í málinu. Einnig er óskað eftir upplýsingum úr sjúkraskrá þess sem kvartaði. Þegar öll gögn liggja fyrir fara starfsmenn embættisins yfir málið.

Oft þarf að leita sérfræðiumsagna og er þá leitað til sérfræðinga sem ekki starfa með kvörtunarþola eða hafa haft með málefni sjúklings að gera. Vegna fámennis hér á landi getur þurft að leita til sérfræðinga erlendis. Þegar niðurstaða Landlæknisembættisins eða sérfræðiumsögn liggur fyrir er gengið frá álitsgerð sem send er til sjúklings og kvörtunarþola og gefst þá málsaðilum tækifæri til þess að koma að athugasemdum eða leiðréttingum innan fjögurra vikna frá dagsetningu álitsgerðar Landlæknisembættisins.

Ástæða er til að taka fram að ferill kvörtunarmála getur tekið langan tíma séu málin flókin eða erfitt reynist að afla umsagna.

Hversu langur frestur er til að senda inn kvörtun?
Kvörtun skal að öllu jöfnu bera fram innan tveggja ára frá því að sjúklingur áttaði sig á misfellum varðandi meðferð sína, og í síðasta lagi innan tíu ára frá því atvikið átti sér stað.

Niðurstaða kvörtunarmála
Niðurstaða kvörtunarmála berst málsaðilum skriflega. Áréttað skal að Landlæknisembættið ákveður ekki skaðabótaskyldu heldur gefur einungis faglegt álit á máli.

Landlæknisembættið getur beint tilmælum til heilbrigðisstarfsmanns um úrbætur, áminnt hann eða svipt hann starfsleyfi. Leyfissvipting er alvarleg og þungbær niðurstaða, sem ekki er beitt nema við mjög alvarleg eða endurtekin brot í starfi.

 

Uppfært 20. febrúar 2009

Skylt efni á þessum vef

Skylt efni á þessum vef

Viðtalstími vegna kvartana

Viðtalstími

Símtölum er svarað
mánudaga, miðvikudaga
og föstudaga kl. 9:00–9:30.





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli