Klínískar leiðbeiningar

Barnaastmi - Inngangur

Leiðbeiningar þessar voru unnar af vinnuhópi á vegum Landlæknisembættisins, en hópinn skipa Björn Árdal, Gunnar Jónasson, Ingólfur Kristjánsson, Rannveig Einarsdóttir og Sigurður Kristjánsson (formaður).

Leiðbeiningar þessar eru unnar sem samráðsálit þar sem fyrst og fremst var stuðst við nýlegar norrænar leiðbeiningar sem Íslendingar áttu hlut að (NORDIC CONSENSUS REPORT ON ASTHMA MANAGEMENT,  Respiratory Medicine 2000;94:299-327). Ný heimildaleit var gerð til að finna nýjar rannsóknir, kerfisbundin yfirlit eða gagnreyndar (evidence-based) klínískar leiðbeiningar um efnið byggðar á gagnreyndri læknisfræði (evidence-based).

Íslensku leiðbeiningarnar voru aðgengilegar á vef Landlæknisembættisins sem drög til umsagnar til loka júní 2002. Tekið var tillit til allra faglegra ábendinga sem bárust formanni vinnuhópsins, Sigurði Kristjánssyni, sérfræðingi á barnadeild LSH.

Auk íslensku leiðbeininganna voru gefnar út leiðbeiningar um meðferð astma hjá Läkemedelsverket í Svíþjóð snemma á árinu 2002. 


Sigurður Helgason, ritstjóri klínískra leiðbeininga
Sigurður Kristjánsson, formaður vinnuhóps

Útgefið í maí 2002

Yfirfarið 11. september 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli