HIV/Alnæmi 30.06.2002

Fjöldi greindra og nýgengi sjúkdómsins
Þann 30. júní árið 2002 höfðu verið tilkynnt til sóttvarnalæknis samtals 156 tilfelli af HIV sýkingu á Íslandi. Þar af hafði 53 sjúklingur greinst með alnæmi og 36 látist af völdum sjúkdómsins (tafla 1). Á fyrstu 6 mánuðum ársins 2002 greindist 1 karl og 1 kona með HIV smit. Nýgengi HIV smits hefur farið vaxandi frá árinu 1993 en á sama tíma hefur dregið úr nýgengi alnæmis og dánartalan hefur lækkað, einkum frá árinu 1996 (mynd 1).

Smitleiðir og áhættuhegðun
Hlutfallsleg skipting HIV smitaðra sjúklinga eftir smitleiðum og áhættuhegðun er sýnd í töflu 2. Flestir þeirra sem greinst hafa frá þessum tíma eru gagnkynhneigðir. Þetta er gagnstætt því sem var í upphaf alnæmisfaraldursins en þá voru flestir samkynhneigðir sem talið var að hefðu smitast við kynmök (tafla 3).

Aldursdreifing
Aldursdreifing HIV smitaðra sjúklinga er sýnd í töflu 4. Flestir þeirra sem greinst hafa með smit eru á aldrinum 25-29 ára. Aldursdreifing þeirra sem greinst hafa með alnæmi er sýnd í töflu 5 . Flestir þeirra sem greinst hafa með alnæmi eru á aldrinum 35-39 ára.

Ályktanir
Eftir að dregið hafði úr nýgengi HIV smits í upphafi 10. áratugar síðustu aldar hefur orðið hægfara aukning á nýgengi sýkingarinnar frá árinu 1993. Á það jafnt við um konur sem karla. Það sem af er fyrri helmings þessa árs hafa einungis 2 ný tilfelli af HIV smiti greinst.  Enn er þó of snemmt að segja til um hvort raunverulega sé að draga úr nýgengi sjúkdómsins hér á landi.

  • Umtalsverð breyting hefur orðið á hlutfallslegri skiptingu áhættuhópa frá því að sjúkdómsins varð fyrst vart. Samkynhneigðir karlar voru hlutfallslega flestir til ársins 1992. Eftir það hefur gagnkynhneigðum sem smitast við kynmök fjölgað hlutfallslega jafnt og þétt og eru um þessar mundir í meirihluta þeirra sem greinast með smit. Enn sem komið er hefur ekki orðið vart aukningar á smiti meðal fíkniefnaneytenda sem sprauta sig.
  • Eftir að öflug lyfjameðferð gegn HIV sýkingu kom til sögunnar í ársbyrjun 1996 hefur dregið umtalsvert úr nýgengi alnæmis og dánartölu vegna sjúkdómsins. Enn greinast þó sjúklingar með alnæmi og enn látast sjúklingar vegna sjúkdómsins. Leggja þarf ríka áherslu á að sumir sjúklingar þola ekki lyfjameðferð og hjá nokkrum þeirra hefur veiran myndað ónæmi gegn lyfjunum.
  • Þótt talsverðar framfarir séu í þróun nýrra lyfja sem þolast betur og veiran hefur ekki náð að verða ónæm gegn er höfuðnauðsyn að forðast smit. Lyfjameðferð er ævilöng og reynist mörgum erfið. Meðferðin er jafnframt afar dýr þjóðfélaginu.
  • Brýn nauðsyn er því að efla forvarnir gegn HIV smiti með öllum tiltækum ráðum.
     

Ágúst 2002
Sóttvarnalæknir

 

Tölur um HIV/Alæmi á Íslandi í júní 2002
Statistics on HIV/AIDS in Iceland June 2002

Tafla 1/Table 1
Fjöldi tilkynntra einstaklinga með HIV smit, fjöldi greindra sjúklinga með alnæmi og fjöldi sjúklinga sem látist hafa af völdum alnæmis. 30. júní 2002.
Number of reported cases with HIV infection, number of diagnosed cases with AIDS and number of patients who have died due to AIDS. June 30 2002.

Tafla 2/Table 2
Dreifing HIV smitaðra eftir smitleiðum og áhættuhegðun. 30. júní 2002.
Distribution of HIV infected cases according to transmission categories. June 30 2002.

Tafla 3/Table 3
Greining HIV smitaðra eftir árum, smitleiðum og áhættuhegðun. 30. júní 2002.
Number of HIV infected cases according to transmission categories and year of report. June 30 2002.

Tafla 4/Table 4
Fjöldi HIV smitaðra eftir aldri. 30. júní 2002.
Number of HIV infected cases according to age groups. June 30 2002.

Tafla5/Table 5
Fjöldi sjúklinga eftir aldri sem greinst hafa með alnæmi. 30. júní 2002.
Number of patients with AIDS according to age groups. June 30 2002.

Mynd 1 / Graph
Nýgengi greininga sjúklinga með HIV smit og alnæmi og dánartala af völdum alnæmis á Íslandi miðað við 31. desember 2001.
The incedence of diagnosed HIV infection and AIDS and the death rate among patients in Iceland as of December 31 2001.


Uppfært 3. mars 2007
Updated 3 March 2007




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli