Tilkynningaskyldir sjúkdómar - tölur

Læknum ber án tafar að tilkynna sóttvarnalækni tilfelli ákveðinna smitsjúkdóma með persónuauðkennum hins smitaða. Tilgangur tilkynningar um smitsjúkdóm er að hindra útbreiðslu smits með markvissum aðgerðum  t.d. með einangrun, meðferð smitaðra og rakningu smits milli einstaklinga eða frá menguðum matvælum, vatni eða öðrum efnum eða búnaði.  Til þess að fullnægja þessum skilyrðum verða upplýsingar um líklegan smitunarstað, smitunartíma og einkenni að fylgja tilkynningum. Þannig má tengja smitaða einstaklinga með faraldsfræðilegum hætti, meta áhrif smitsins og grípa til viðbragða.

Tilkynningaskyldir sjúkdómar eru þeir sem náð geta mikilli útbreiðslu í samfélaginu og jafnframt ógnað almannaheill. Alvarlegir smitsjúkdómar, sem ekki geta náð mikilli útbreiðslu, tilheyra einnig þessum flokki þegar ekki er hægt að hindra útbreiðslu þeirra án þess að að þekkja til smitaðra einstaklinga.

Uppfært 28. september 2010
Updated 28. September 2010

Tilkynningaskyldir sjúkdómar Statistics on notifiable diseases

Tilkynningaskyldir sjúkdómar

For an English version, please click worksheet 2 of the table





Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli