Smit og sýkingar innan heilbrigðisþjónustunnar
Sýkingar af völdum smits innan heilbrigðisþjónustunnar geta lagst bæði á sjúklinga og starfsfólk. Heilbrigðisþjónusta hefur á undanförnum árum í auknum mæli færst frá sjúkrahúsunum. Minni háttar aðgerðir eru framkvæmdar á heilsugæslustöðvum og æ fleiri aðgerðir, sem áður voru framkvæmdar á sjúkrahúsum, eru gerðar á einkareknum skurðstofum.
Sýkingar innan heilbrigðisþjónustunnar eiga sér einnig stað á meðferðarstofnunum, dvalar- og hjúkrunarheimilum, enduhæfingar- og umönnunarstofnunum. Sýkingar þessar ná jafnvel inn á heimili landsins, því reynt er í auknum mæli að meðhöndla fólk með krabbamein og langvinna sjúkdóma í heimahúsum.
Afleiðingar sýkinga innan heilbrigðisþjónustunnar eru m.a. aukin vanlíðan fyrir viðkomandi, hugsanlega lengri sjúkrahúsdvöl en ella, aukinn kostnaður við sýklalyfjagjöf og vandmeðhöndlaðar sýkingar, frávera starfsfólks vegna veikinda og kostnaður við aðgerðir til að stöðva útbreiðslu sýkinga. Í einstaka tilfellum geta sýkingar innan heilbrigðiskerfisins leitt til dauða.
Fjöldi mismunandi smitefna geta valdið sýkingum innan heilbrigðisþjónustunnar og smitleiðirnar eru margar. Algengasta smitleiðin eru hendur starfsmanna, en aðrar vel þekktar eru m.a. sápa, loftborið smit, mengaður innrennslisvökvi, menguð skurðáhöld og örverumenguð matvæli. Hornsteinn í forvörnum gegn sýkingum innan heilbrigðisþjónustunnar er góður handþvottur.
Sýkingavarnir á sjúkrahúsum
Við Landspítala (LSH) er starfandi sýkingavarnadeild sem vinnur að því að koma í veg fyrir spítalasýkingar og stöðva útbreiðslu þeirra innan LSH. Sýkingavarnadeild LSH er í nánu samstarfi við sóttvarnalækni, sem hefur yfirumsjón með forvörnum gegn sýkingum innan heilbrigðisþjónustunnar og úrlausn hópsýkinga jafnt innan sem utan stofnana annarra en LSH.
Á deildaskiptum sjúkrahúsum skal, samkvæmt reglugerð um sóttvarnaráðstafanir nr. 414/2007, starfa sýkingavarnanefnd og eftir atvikum sýkingavarnadeild sem hafa það hlutverk að skrá aðgerðatengdar sýkingar og stuðla að sýkingavörnum innan stofnunarinnar.
Skráningarskylda
Samkvæmt reglugerð um skýrslugerð vegna smitsjúkdóma nr 420/2008 eru aðgerðatengdar sýkingar í heilbrigðisþjónustunni skáningarskyldur sjúkdómur og hið sama gildir um sýkingar af völdum fjölónæmra sýkla. Það merkir að læknum er skylt að skrá slíkar upplýsingar á þar til gerð eyðublöð eða með rafrænum hætti og senda sóttvarnalækni skv. nánari fyrirmælum hans.
Uppfært 3. febrúar 2009