Sýking í öndunarvegi

Öndunarfærasmit verður þegar smitefnið berst gegnum öndunarfærin. Flestir neðangreindra sjúkdóma smitast á fleiri vegu, algengast er snertismit, t.d. með handabandi þegar fólk heilsast. Smitið berst síðan með höndum í slímhúðir munns eða nefs. Aðrar smitleiðir eru dropa- og úðasmit við hósta eða hnerra og loftborið smit þegar smitefnið er það létt að það berst með lofti.

Algengast er að smitið eigi sér stað milli manna, en í ákveðnum sjúkdómum kemur það úr umhverfi (Legionella) eða fuglum (Chlamydia psittaci). Einstaklingur getur verið smitberi, þ.e. með smitefnið í öndunarfærum án þess að vera sjálfur veikur,  og borið smitið til annarra móttækilegra sem geta fengið einkenni.

Sumir sjúkdómanna, t.d. kvef og hlaupabóla, ganga yfir sjálfkrafa og eru hættulitlir einstaklingum sem eru frískir að öðru leyti. Aðrir geta valdið alvarlegum einkennum og leitt til dauða, má þar m.a. nefna berkla, kikhósta og meningókokka. 

 

 

Uppfært 12. mars 2007




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli