Læknaskrá

Landlæknisembættið heldur skrá yfir lækna. Í skránni eru tilteknar upplýsingar um alla lækna sem hafa lækningaleyfi á Íslandi og læknanema á 4., 5. og 6. ári.

Landlæknisembættið úthlutar læknum einkvæmum læknanúmerum sem skráð eru í læknaskrána.

Landlæknir veitir læknanemum, sem starfa á heilsugæslustöðvum á námstíma sínum, tímabundið lækningaleyfi.

Í skránni sem birt er á vef Landlæknisembættisins eru læknanúmerin ekki birt og eingöngu upplýsingar um þá lækna sem hafa almennt lækningaleyfi á Íslandi. Vefútgáfan er uppfærð reglulega.

Þeir sem þurfa upplýsingar um læknanúmer s.s. lyfjaverslanir og heilbrigðisstofnanir geta fengið útgáfu af skránni með læknanúmerum senda á rafrænu formi.

Uppfært 8. mars 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli