Kynfæravörtur - HPV

Hvað eru kynfæravörtur?
Kynfæravörtur eru sýking af völdum Human Papilloma Virus sem skammstafast HPV. Margar
gerðir eru þekktar af þessari veiru og hafa sumar þeirra verið tengdar leghálskrabbameini.
Sýkingin getur valdið vörtum sem koma á slímhúð og húð, sérstaklega á ytri kynfæri og við
endaþarmsop. Margt bendir til þess að þetta sé algengasti kynsjúkdómurinn á Vesturlöndum.
Talið er að meira en helmingur þeirra sem eru virkir í kynlífi hafi sýkst af veirunni.


Hvernig smitast kynfæravörtur?
HPV smitar með snertingu húðar eða slímhúðar við sýkta húð/slímhúð. Við munnmök er hægt
að fá þessa veirusýkingu í munninn. Vörtur í munni eru þó sjaldgæfar. Talið er að rakstur
kynfærahára geti dreift vörtunum út yfir stærra svæði á líkamanum og ber því að gæta fyllsta
hreinlætis ef slíkt er gert.


Hvernig get ég komið í veg fyrir smit?
Smokkur er eina vörnin gegn smiti en hann verndar aðeins þann hluta kynfæranna sem hann
hylur. Hann er því ekki fullkomin vörn gegn smiti því að slímhúð og húð sem ekki er hulin geta
sýkst við samfarir.


Eru kynfæravörtur hættulegar?
Vörturnar sjálfar valda ekki ófrjósemi eða líkamstjóni. Þær eru í húðinni eða á slímhúð en fara
ekki inn í blóðrásina. Vörturnar hverfa oftast af sjálfu sér. Nokkrar tegundir kynfæravörtuveira
geta aftur á móti valdið frumubreytingum sem leitt geta til krabbameins í leghálsi. Nauðsynlegt
er því fyrir konur að fara reglulega í leghálsstrok og eftirlit, t.d. á Leitarstöð krabbameinsfélagsins
eða til kvensjúkdómalækna.


Hver eru einkenni kynfæravartna?
Þær geta valdið kláða og ertingu. Konur með vörtur í leggöngum eða leghálsi geta fundið til
sársauka við samfarir. Vörtur geta einnig komið við þvagrásarop og truflað þvaglát. Flestir
finna þó ekki fyrir neinum óþægindum og vita iðulega ekki af því að þeir séu sýktir nema
vörturnar séu stórar og á ytri kynfærum.


Hvenær koma einkenni í ljós eftir smit?
Vörturnar koma í ljós frá þremur vikum og allt að tveimur árum eftir smitun.


Hvernig er hægt að greina kynfæravörtur?
Kynfæravörtur greinast í læknisskoðun. Ekki eru tekin sýni til greiningar.


Er hægt að fá meðferð við kynfæravörtum?
HPV-sýkinguna sem slíka er ekki hægt að meðhöndla þar sem engin lyf eru til sem drepa
veiruna. Hins vegar er til margskonar meðferð gegn vörtunum sem veirurnar orsaka. Flestar
vörtur hverfa fyrr eða síðar af sjálfu sér, en oft getur liðið langur tími eða jafnvel mörg ár
þangað til þær hverfa. Dæmi um meðferð við vörtunum:

  1. Áburður (podophyllotoxin) borinn á vörtusvæðið tvisvar á dag í þrjá daga og endurtekið
    eftir viku.
  2. Frysting með köfnunarefni, sem oftast þarf að endurtaka nokkrum sinnum með eins
    til þriggja vikna millibili.
  3. Deyfing og brennsla með rafmagni eða leysigeislameðferð.

Veiran sem veldur vörtunum hverfur ekki við meðferð og því geta vörturnar komið fram aftur
seinna. Meðferð dregur ekki endilega úr smithættu á meðan veiruna er enn að finna á húð
og slímhúð.

Nýlega komu á markaðinn bóluefni gegn algengustu vörtuveirunum. Stúlkur og ungar konur
geta fengið bólusetningu, hafi þær ekki orðið fyrir vörtusmiti. Allgóð vörn fæst gegn kynfæravörtum
og leghálskrabbameini eftir slíka bólusetningu.

Uppfært 11. mars 2009




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli