ICF

Útgáfa Alþjóðlega flokkunarkerfisins um færni, fötlun og heilsu (ICF eða International Classification of Functioning, Disability and Health) á íslensku er nú í undirbúningi hér á landi. Þetta flokkunarkerfi er gert fyrir samræmda skráningu á heilsutengdri færni og færniskerðingu og lýsir færni frá ólíkum sjónarhornum, svo sem hreyfigetu eða félagslegri aðlögun. Uppbygging þess beinir sjónum að samspili milli heilsufars, færni og aðstæðna.

ICF flokkunarkerfið er gefið út af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO sem heldur sérstaka vefsíðu um ICF.

Þýðing ICF er samstarfsverkefni Landlæknisembættisins og Háskólans á Akureyri og stendur nú yfir samráðsferli þýðingarinnar.

Frumgerð þýðingarinnar er birt á vef Landlæknisembættisins www.skafl.is og er þar hægt að fletta í ICF og leita í texta.

Sjá nánar um hugmyndafræðilega uppbyggingu í kynningarskjali um ICF og útskýringum á almennum hugtökum ICF.

Æskilegt er að allir sem hafa hug á að nýta ICF í starfi sínu kynni sér hugmyndafræði þess og hugtök og rýni þær þýðingar sem notaðar eru í frumgerðinni. Allar ábendingar um það sem betur má fara í þýðingunni eru vel þegnar og þær má senda á netfang fyrir flokkunarkerfi (Flokkun@landlaeknir.is)  eða bréflega til Landlæknisembættisins, merkt ICF flokkunarkerfi.

Ákveðið hefur verið að hverfa frá fyrri áætlunum um að gefa ICF út á prenti í árslok 2010. Allar ábendingar verða metnar og þýðingar endurskoðaðar ef ástæða þykir til fyrir prentun fyrstu útgáfu ICF sem þá frestast til ársins 2011.

Samráðsferli vegna þýðingar ICF er nú á lokastigi. Margar góðar ábendingar komu fram á málþing sem haldið var í september 2010. 



Fyrirspurnir/tilkynningar um útgáfu ICF á íslensku

 

 

Uppfært 16. nóvember 2010

ICF flokkunarkerfið

ICF flokkunarkerfið

Skylt efni

Skylt efni

Vefbirting flokkunarkerfa

Vefbirting



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli