Sýking í blóði
Blóðborið smit berst með blóði frá einum einstaklingi yfir í annan með blóðgjöf/blóðhlutagjöf, óhreinum nálum og sprautum eða óvörðum kynmökum.
Til að koma í veg fyrir blóðborið smit með blóðgjöf er allt blóð, sem ætlað er til blóðgjafar eða blóðhlutavinnslu, rannsakað m.t.t. alnæmis, lifrarbólgu B og C. Smit með óhreinum nálum og sprautum á sér eingöngu stað hérlendis meðal sprautufíkla. Til að hindra smit þeirra á meðal er ráðlagt að nota hreinar nálar og sprautur sem fást á lágu verði í lyfjaverslunum. Notkun smokka er öruggasta leiðin til að hindra smit með kynmökum.
Algengustu sjúkdómarnir, sem berast með blóði, eru alnæmi, lifrarbólga B og C. Fleiri sjúkdómar geta einnig smitast með blóði en það er sjaldséð.