Lifrarbólga A

Lifrarbólga A er sjúkdómur sem orsakast af veiru (hepatits A virus). Lifrarbólgan getur skemmt eða truflað starfsemi lifrarinnar þannig að efni úr blóði skiljist síður út með galli, en þessi efni geta síðan valdið gulu. Lifrarbólga A er landlægur sjúkdómur í Afríku, Suður-Ameríku og víðast hvar í Asíu. Börnin sýkjast þar ung að aldri og mynda ónæmi fyrir lífstíð.
Lifrarbólga A er sjaldséður sjúkdómur á Íslandi og þau tilfelli sem koma upp eru vegna smits sem viðkomandi verður fyrir erlendis.
Meðgöngutími, þ.e.tíminn sem líður frá smiti til einkenna af völdum lifrarbólgu A, er í flestum tilfellum um 4 vikur, en getur verið frá 2-6 vikur.

Smitleiðir
Aðalsmitleiðin er með saur-munn smiti ýmist beint eða óbeint. Einstaklingur er smitandi frá því 2 vikum áður en einkenna verður vart þar til einni viku eftir upphaf einkenna. Veiran dreifist auðveldlega þegar almennu hreinlæti er ábótavant og upp geta komið sýkingar orsakaðar af  menguðu vatni eða mat.

Beint smit manna á milli gerist einnig og eru ákveðnir hópar í aukinni áhættu fyrir því:

  • Starfsfólk og heimilisfólk á stofnunum fyrir þroskahefta.
  • Starfsfólk og börn á leikskólum, einkum er hætta á smiti frá bleiubörnum.
  • Karlar sem stunda kynlíf með körlum.
  • Sprautufíklar.
  • Ferðamenn frá svæðum þar sem lifrabólga A er sjaldséð á leið til svæða þar sem lifrabólga A er landlæg.

Einkenni
Í fyrstu eru undanfarandi einkenni gulu ráðandi með sem líkjast flensueinkennum, ónotum í efri hluta kviðar, lystarleysi og ógleði, hita allt að 39°C og stöku sinnum vöðva- og liðverkjum. Nokkrum dögum síðar getur komið fram gula og dökknar þá þvag og hægðir lýsast. Gula og kláði geta varað vikum og mánuðum saman. Ekki fá allir sem sýkjast einkenni, og eru um 25-30% fullorðinna sem sýkjast einkennalausir. Þó er mun algengara að börn séu einkennalaus en fullorðnir og einungis lítill hluti barna undir 6 ára aldri fá klínisk merki um sjúkdóm.

Fylgikvillar
Í undantekningartilfellum (<1%) leiðir smit með lifrarbólgu A veiru til óafturkræfrar lifrarbilunar.

Greining
Lifrarbólga A  er greind með blóðprófi.  Niðurstöður liggja fyrir innan nokkurra daga frá því að próf er tekið.

Meðferð
Lifrarbólga A gengur sjálfkrafa yfir án nokkurrar meðferðar.

Forvarnir
Gæta ber fyllstu varúðar við val matar og vatns í löndum þar sem hreinlæti gæti verið ábótavant. Sprautufíklar skulu ekki nota sprautur og nálar annarra og gagnkynhneigðum mönnum ber að gæta fyllsta hreinlætis við skyndikynni.
Hægt er að fyrirbyggja lifrarbólgu A með bólusetningu eða með því að gefa mótefni í vöðva. Mótefnin veita vörn í einungis 2-3 mánuði. Bóluefnið er gefið í tveimur sprautum með 6-12 mánaða millibili einstaklingum eins árs og eldri og talið er að það veiti vörn í a.m.k. 20 ár.  Þegar kunnugt er um smit ber viðkomandi að hafa í huga að góður handþvottur eftir salernisferðir og áður en matvæli eru handleikin er áhrifamesta vörnin gegn því að smita aðra.
Lifrarbólga A er lögum samkvæmt tilkynningaskyldur sjúkdómur til sóttvarnalæknis.


Uppfært 30. mars 2007


Skylt efni

Skylt efni



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli