Astmi
Að lifa með astma
Astmi er langvinnur bólgusjúkdómur í berkjum. Um 4-5% íslendinga eru með astma en hann er til muna algengari hjá börnum en fullorðnum eða 18-28% eftir aldri. Þrálátar bólgubreytingar í lungum við astma virðast geta valdið langtímabreytingum á lungnavef sem ekki ganga tilbaka. Með réttri meðferð sem fyrst eftir að sjúkdómur er greindur er hægt að minnka líkurnar á þessari örvefsmyndun.
Helstu einkenni astma eru mæði, surg fyrir brjósti og hósti. Þau geta komið í köstum jafnvel að næturlagi. Einkennin geta verið misjöfn frá degi til dags, astminn getur jafnvel horfið eða hörfað um skeið en skotið síðan upp kollinum vegna einhverra áreita. Sjúklingurinn verður því að þekkja sjúkdóminn til hlítar og læra hvenær og hvernig á að bregðast við hverju sinni. Hann þarf að læra hvaða þættir valda auknum einkennum, hvað eigi að forðast og hvenær þurfi að leita læknis. Val á réttri astmameðferð byggist á því að sjúklingur og læknir hafi innsæi í sjúkdóminn og finni lágmarks lyfjameðferð sem heldur sjúklingnum einkennalausum.
Nokkrar ráðleggingar til að halda astmanum í skefjum:
- Forðastu reykingar og hvers kyns mengun.
- Forðastu þekkta ofnæmisvalda og kynntu þér hvar rykmaurar leynast á þínu heimili.
- Farðu gætilega eftir öndunarfærasýkingar því astmaköst koma þá gjarnan í kjölfarið.
- Farðu árlega í inflúensubólusetningu.
- Kynntu þér rétta notkun innúðalyfja og láttu meta árangur þinn þar að lútandi.
- Regluleg mæling öndunargetu metur best árangur astmameðferðar.
Þann 28. október næstkomandi verður haldin ráðstefna fyrir almenning á Hótel Loftleiðum, kl. 14-18. Fjallað verður um ýmsar hliðar astma.
Þær greinar sem hér fara á eftir um orsakir og meðferð astma hefur Unnur Steina Björnsdóttir sérfræðingur í ofnæmissjúkdómum og ónæmisfræði tekið saman. Þær birtust fyrst sem Hollráð í Morgunblaðinu og á vef Landlæknisembættisins í október 2000.
- Orsakir og meðferð astma
- Astmi og erfðir
- Reynslusaga astmasjúklings
Barnaspítali Hringsins, fræðsluefni fyrir foreldra
The National Asthma Campaign, UK
National Center for Environmental Health, USA
Uppfært 18. nóvember 2008