Áramótaheit

Að stíga á stokk og strengja heit
Þá eru aðventan og jólin liðin og vonandi hafa sem flestir notið þeirra og átt góðar stundir með ættingjum og vinum. Nýtt ár er gengið í garð og sólin að hækka á lofti. Á þessum tímamótum er eðlilegt að litið sé yfir farinn veg og og það hugleitt hversu sáttur maður er með lífshlaupið og jafnframt að horft sé fram á við og velt vöngum yfir því hvað nýtt ár muni bera í skauti sér.

Margir nota áramótin til að strengja heit og lofa bót og betrun á ýmsum sviðum s.s. að verða betri manneskja, lifa heilsusamlegra lífi, draga úr lífsgæðakapphlaupinu eða vera sáttur við sjálfan sig og aðra menn. Algengt er að eftir veislur jóla og áramóta fyllist fólk samviskubiti og ætli að taka sér tak, borða minna, hreyfa sig meira, drekka minna og hætta að reykja. Þá er stigið á stokk og þess heitið með alvörusvip að byrja nýtt líf því menn eru stórhuga og það dugar ekkert minna en bylting.

Það er svo ekkert nema gott eitt um það að segja ef fólk vill taka upp hollari lífshætti og bæta líf sitt og líðan. Hins vegar er hættan sú að markið sé sett of hátt og að menn villist fljótlega af leið þannig að þeir nái ekki settu marki. Þetta getur valdið kvíða, streitu og samviskubiti og þá er betra heima setið en af stað farið. Svo eru góðu áformin sett í salt til næstu ármóta. Þegar hugað er að því að breyta einhverjum venjum og siðum er gott að hafa nokkur atriði í huga.

  • Setja raunhæf markmið og flýta sér hægt, þ.e. að ná markmiðinu í áföngum.
  • Undirbúa sig andlega til að takast á við verkefnið og gera sér grein fyrir hvernig það verður gert. 
  • Tryggja stuðning frá fjölskyldu eða vinum, þá eru meiri líkur á að áætlunin standist. 
  • Gera sér grein fyrir hvaða aðstæður það eru sem auka líkur á að maður „falli", þ.e. að allt fari aftur í sama farið og vera tilbúin(n) með varnaraðferð.
  • Ef svo fer að maður „fellur" er mikilvægt að gefast ekki upp heldur setja sig aftur á kúrs og vera búin(n) að ákveða hvernig maður bregst við þeim aðstæðum.

Manneskjan er vanaföst og það kostar vinnu og andlega einbeitingu að bregða út af vananum. Þess vegna er mikilvægt að undirbúa sig vel og velja tíma sem hentar manni sjálfum. Það er ekki endilega víst að það séu áramótin. Gangi ykkur allt í haginn á nýju ári.

Anna Björg Aradóttir
hjúkrunarfræðingur

Birtist í Mbl. 11. janúar 2003


Uppfært 18. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli