Karíus og Baktus fara ekki í jólafrí
|
Karíus og Baktus fara |
![]() |
Kannanir sýna að við borðum allt of mikið af sykri og drekkum allt of mikið af sætum drykkjum. Hvert mannsbarn á Íslandi neytir að meðaltali 50,9 kg af sykri á ári á meðan sykurneysla flestra annarra þjóða er í mun minna mæli. Sem dæmi má nefna að sykurneysla Finna er að meðaltali 33,4 kg á mann á ári. Hins vegar neytum við að meðaltali 119 kg af grænmeti og ávöxtum á ári en meðaltalsneysla Finna er 151 kg á ári. Þessar tölur gefa okkur ákveðna innsýn í neysluvenjur okkar, samanborið við aðra, og benda til þess að hér megum við heldur betur taka okkur á.
Öll viljum við halda tönnum okkar heilbrigðum og fallegum alla ævina. Það er því mikilvægt að huga vel að forvörnum og vera vakandi yfir neysluvenjum okkar og barnanna okkar.
Vinsamleg tilmæli til jólasveinanna!
Jólasveinarnir eru nú að koma niður af fjöllunum, hver á fætur öðrum, til þess að gleðjast með okkur hinum sem búum til sjávar og sveita. Þegar þeir koma til byggða eru þeir sannkallaðir gleðigjafar - syngja og tralla og gefa góðum börnum glaðning í skóinn. En þar langar okkur að biðja jólasveinana að hafa eftirfarandi í huga:
|
Kæru jólasveinar
Við viljum biðja ykkur að gæta hófs í sælgætisgjöfum. Sumir af okkur foreldrunum reyna að stemma stigu við sælgætisneyslu barnanna með því að hafa ákveðið skipulag á sætindaáti, t.d. með því að hafa sérstakan nammidag aðeins einu sinni í viku. Við hvetjum því alla jólasveina til að gefa börnum frekar ávexti, t.d. epli, mandarínur, vínber, eða bara lítil leikföng eða bækur. |
Foreldrar og börn athugið!
- Tennurnar eru jafn viðkvæmar í desember eins og aðra mánuði ársins.
- yrjum ekki daginn á neyslu sælgætis. Það er slæmur siður á öllum árstímum!
- Barnatennur og nýuppkomnar tennur eru sérstaklega viðkvæmar fyrir tannskemmdum.
- Til þess að draga úr hættu á tannskemmdum skiptir meira máli hversu oft við neytum sykurs en hversu mikils.
- Sælgæti sem klístrast við tennurnar, t.d. karamellur, hlaup og lakkrís, er lengi að eyðast af yfirborði tannanna. Á meðan liggja tennurnar í sýrubaði.
- Nauðsynlegt er að bursta tennurnar vel og vandlega kvölds og morgna með flúortannkremi.
Jóhanna Laufey Ólafsdóttir
Verkefnastjóri tannheilsu hjá Lýðheilsustöð
Birtist í Mbl. 11. desember 2004
Uppfært 18. nóvember 2008

