Heilbrigðar tennur - heilar tennur
Helstu þættir sem hafa þarf í huga til að halda tönnum sínum heilbrigðum
Það er eftirsóknarvert að hafa heilbrigðar tennur alla ævi. Flestir Íslendingar vita í dag hvað veldur tannskemmdum. Óhreinindi sem við köllum tannsýklu, setjast á yfirborð tannanna og því er nauðsynlegt að bursta þær kvölds og morgna.
Mikilvægt er að bursta tennurnar með flúortannkrem því flúorinn tekur þátt í því viðgerðarferli sem stöðugt er í gangi við yfirborð tannanna og hefur truflandi áhrif á starfsemi þeirra baktería sem valda tannskemmdum. Ekki er hægt að bursta með tannbursta á milli tannanna er og því nauðsynlegt að nota tannþráð.
Mikilvægt er að fara í tannskoðun reglulega því munnkvillar geta komið aftan að fólki.
Á undanförnum árum hafa neysluvenjur okkar breyst verulega og gosdrykkjaneysla hefur aukist stórlega. Nú drekka margir gosdrykki sem sinn helsta svaladrykk. Mikilvægt er að átta sig á því að sífelld neysla á súrum og sætum drykkjum getur valdið glerungseyðingu. Það er mjög uggvænlegt ef glerungurinn, sem ver tennurnar, eyðist utan af þeim. Tennurnar þynnast og verða mun viðkvæmari fyrir kuli og hættan á tannskemmdum margfaldast.
Myndirnar sýna þætti sem hafa ber í huga til þess að viðhalda heilbrigðum tönnum:
![]() |
![]() |
![]() |
Jóhanna Laufey Ólafsdóttir
verkefnisstjóri tannverndar
Lýðheilsustöð
Birtist í Mbl. 22. nóvember 2006
Uppfært 18. nóvember 2008


