Hvað tekur þú með þér heim?


Myndin er af skilti sem sett var upp í landganginum á Leifstöð snemma sumars 2003. 

Boðskapur skiltisins er að hvetja fólk til að hafa aðgát í kynlífi. Það á að minna á að varast skyndikynni á erlendri grund án smokksins. Aðgát í kynlífi í öðrum löndum er mikilvæg vegna þess að um helmingur þeirra sem greinst hafa með HIV-smit á Íslandi hafa smitast erlendis. Nær helmingur þeirra, sem greinast á Íslandi og hafa smitast erlendis, smituðust í Evrópu og í 23% tilvika í Suðaustur-Asíu. Aðrir koma með smitið víða að. Tíðni nýsmitunar er hæst í fyrrum Sovétríkjunum og Suðaustur-Asíu en af Evrópu er smit langmest í Frakklandi, Ítalíu, Spáni og í Portúgal.

 

Eru kynsjúkdómar algengir?

Sem dæmi um algengi kynsjúkdóma er einn af hverjum 100-200 smitaðir af HIV í heiminum, og í Evrópu er 1% fólks smitað af lifrarbólgu C. Í Sovétríkjunum fyrrverandi geisa bæði HIV- og sárasóttarfaraldrar. Á Íslandi smitast um það bil einn á mánuði af HIV/alnæmi. Það sama á við um sárasótt, en sex á dag smitast af klamydíu

 

Hvaða máli skiptir þetta mig?

Þetta eru mikilvægar upplýsingar fyrir alla sem eru að fara erlendis, sérstaklega til landa þar sem mikið er um smitun. Í ferðum  erlendis er oft ekki ætlunin að hafa kynmök, en áætlanirnar geta breyst fyrirvaralaust. Það er ekkert óeðlilegt við að stunda kynlíf ef það brýtur ekki í bága við okkar eigið siðgæði eða annarra, en því fylgir alltaf sú ábyrgð að tryggja eigið kynheilbrigði. Því þurfum við að spyrja okkur sjálf hvernig kynlíf við viljum stunda og breyta samkvæmt því. Ef við viljum af heilum hug koma í veg fyrir oft lífshættulega og langvarandi kynsjúkdóma, er mikilvægt að við fylgjum hugsun okkar eftir í verki.

 

Er nóttin gamansins virði?

Ef við ferðumst ein eða líkur geta verið á því að skyndikynni eigi sér stað, er nauðsynlegt að taka með sér smokka að heiman. Það getur oft vafist fyrir okkur erlendis að kaupa þá. Hér eru líka allir smokkar gæðaprófaðir, en víða um heim er það ekki tilfellið.

 

Konur ættu líka að taka með sér smokka, rétt eins og karlarnir. Það er alltaf mikilvægt að taka tillit til þeirra sem óska eftir að nota smokkinn, en stundum gengur það ekki eftir. Sé lagt upp til næturgamans án þess að setja öryggið á oddinn er spurning hvort nóttin sé gamansins virði.

 

Sigurlaug Hauksdóttir yfirfélagsráðgjafi

Landlæknisembættinu

 

Greinin birtist í Mbl. 21. júní 2003

 

Uppfært 18. nóvember 2008


 




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli