Samskipti á vinnustað

Andrúmsloft og félagslegar aðstæður á vinnustað geta mótast að verulegu leyti af fólkinu sem þar vinnur og hvernig samskipti þess eru. Þetta samspil mótast meðal annars af því hversu mikla líkamlega áreinslu vinnan hefur í för með sér, tækninni sem beitt er og vinnuskipulaginu. Félagsleg tengsl starfsmanna eru mismunandi; allt frá yfirborðskenndum, formlegum samskiptum einstaklinga til þess að starfsmenn verða að sameina algjörlega krafta sína til þess að geta leyst verkefni.

Hin ólíku tengsl milli starfsmanna á vinnustað ráða miklu um það hvort þeir finna til öryggis, hvort þeim finnst félagsskapurinn góður og hvort starf þeirra sé metið að verðleikum. Það hvort unnt er að fullnægja þessum þörfum er háð því hvers konar samskiptaform starfsaðstæðurnar móta. Það ber að hafa í huga þegar metið er hvernig haga skuli vinnu og skipulagi á vinnustað að flestir meta mikils félagsskapinn við starfsfélaga sína.

Fyrir þann sem vinnur einn, án sambands við annað fólk, getur óttinn við afleiðingar þess að verða fyrir slysi eða veikindum reynst þungbær. Það veldur einnig álagi að starfa við skilyrði sem vekja ótta um að geta ekki ráðið einn fram úr flóknum og óvæntum atburðum sem kunna að koma upp. Bara það að vera einn, einkum að næturlagi, getur reynst þrúgandi fyrir marga.

Við ýmis störf, einkum umönnunar- og þjónustustörf, getur sambandið við annað fólk, m.a. að þurfa að bregðast við kröfum skjólstæðinga eða viðskiptavina, reynst mikil þolraun. Mikilvægt er að slíkar aðstæður séu ræddar á vinnustaðnum og þeir, sem við þetta glíma, njóti stuðnings svo að ástandið verði eins gott og unnt er.

Einnig skiptir miklu hvernig verkstjórn er beitt. Nú á tímum einkennist verkstjórahlutverkið fremur en fyrr af því að skipuleggja, samhæfa og leiðbeina. Verkstjóra er ætlað að gera starfsmönnum ljóst hvað til þarf svo markmið starfseminnar náist, samræma það sem gert er í því skyni og skipta verkum eftir því sem helst verður á kosið. Af þessu leiðir að mikilvægt er að skapa gott starfsumhverfi með því að hafa góð samskipti og tengsl milli starfsmanna og örvandi og þroskandi andrúmsloft.

Eigi verkstjórinn að vera fær um að gegna hlutverki sínu þarf ábyrgð á vinnuverndarverkefnum á vinnustaðnum að vera skýr og tækifæri þarf að gefast til að leysa verkefnin.

Guðbjörg Linda Rafnsdóttir

Textinn byggir á kverinu
Vinnuskipulag og líðan fólks sem gefið er út af Vinnueftirliti ríkisins,
Fræðslu- og leiðbeiningarit nr. 16

Uppfært 18. nóvember 2008

 

 

 




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli