Samskipti og samvera

                                                Maður er manns gaman

Veistu ef þú vin átt,
þann er þú vel trúir 
og vilt þú af honum gott geta 
geði skaltu við þann blanda 
og gjöfum skipta, 
fara að finna oft. 

Ungur var eg forðum,
fór eg einn saman
þá varð eg villur vega. 
Auðigur þóttumst
er eg annan fann:
Maður er manns gaman

                                                                                                             (Úr Hávamálum)

Landlæknisembættið vill vekja athygli á mikilvægi góðra samskipta og félagslegs stuðnings til að efla heilsu og bæta líðan. Í þúsundir ára hafa heimspekingar og aðrir hugsuðir rætt og ritað um mikilvægi þess að rækta vináttu og félagsskap. Í speki Hávamála er á meistaralegan hátt fjallað um kosti og galla mannlegs eðlis. Vináttan er sögð hverjum manni nauðsyn og hana þarf að rækta vel.

Nútímarannsóknir renna enn frekari stoðum undir þennan forna vísdóm. Sífellt fleiri rannsóknir sýna fram á að það að njóta stuðnings annarra og blanda geði við fólk er lykilatriði í að bæta eða viðhalda virkri hugsun og heilsu til líkama og sálar.

Rannsóknir á vímuefnanotkun ungs fólks sýna að minni líkur eru á að unglingar neyti fíkniefna ef þeir verja tíma með foreldrum sínum. Félagslegur stuðningur bætir lífsgæði fólks sem á við geðræna sjúkdóma að stríða og bætir geðheilsu allra. Góð samskipti á vinnustað bæta líðan og líkamlega heilsu starfsmanna. Eldra fólk sem er virkt félagslega og blandar geði við annað fólk viðheldur betur hugarstarseminni. Einnig benda rannsóknir til þess að karlar sem búa einir stríði frekar við ýmis konar heilsufarsvandamál, þar á meðal hjartasjúkdóma, en þeir sem eru í sambúð. 

Grein þessi birtist fyrst sem Hollráð á vef Landlæknisembættisins sem liður í þemamánuði embættisins í september 2000 um gildi mannlegra samskipta.

Undir fyrirsögninni Samskipti og samvera eru fleiri greinar um sama efni sem birtst hafa í Morgunblaðinu undanfarin ár. Þeim er raðað eftir birtingu þeirra í Morgunblaðinu, þær nýjustu efstar. 

Uppfært 13. mars 2007




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli