Málþing um skimun 11. nóvember 2004
Þann 11. nóvember 2004 gekkst Landlæknisembættið fyrir málþingi í Norræna húsinu um skimun fyrir krabbameinum. Að krabbameini hefur verið leitað á íslandi í hartnær fjóra áratugi og hefur skimun fyrir krabbameini í leghálsi og síðar brjóstum farið fram á vegum Leitarstöðvar Krabbameinsfélags Íslands. Leitarstöðin er fertug í ár.
Mikil og vaxandi umræða hefur farið fram um gildi skimunar fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi og henni víða beitt í nálægum löndum. Því var talið tímabært að horfa til árangurs skimunar fyrir krabbameini hér á landi og meta rök sem lúta að nýrri skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi.
Fjallað var um árangur skimunar fyrir brjósta- og leghálskrabbameini hér á landi, litið til kostnaðarmats sem unnið hefur verið af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Litið var á skimun í samfélagslegu ljósi og út frá sjónarmiði almennings og þeirra sem starfa í heilsugæslu. Fjallað var um skilyrði góðra skimprófa og faraldsfræðileg rök fyrir skimun.
Niðurstaða málþingsins var í stuttu máli sú að almennur stuðningur var við áform um að taka upp skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi hér á landi. Lögð var áhersla á að skimun ætti að vera valkvæð og byggjast á þekkingu og upplýstu vali hvers og eins. Nokkuð var fjallað um kostnaðarhlutdeild og kom fram í máli margra fundarmanna að rétt væri að hver einstkaklingur greiddi ákveðið gjald fyrir hverja skimun, svipað og nú er gert fyrir skimun fyrir brjóstakrabbameini og leghálskrabbameini.
Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, ávarpaði málþingið og í máli hans kom fram að skimun fyrir ristil- og endaþarmskrabbameini virtist vera nærtækast viðbótin við þá skimun sem þegar er stunduð hérlendis.
Fundarstjóri var Guðrún Agnarsdóttir læknir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands.
Hér fyrir neðan má nálgast ávarp og fyrirlestra:
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra: Ávarp
Sigurður Guðmundsson landlæknir: Almennar vangaveltur um skimun (pdf)
Kristján Sigurðsson yfirlæknir: Skimun fyrir leghálskrabbameini (pdfa9
Heiðrún Guðmundsdóttir, sérfræðingur á Hagfræðistofnun HÍ: Kostnaður og ábati kerfisbundinnar skimunar eftir krabbameini í ristli og endaþarmi (pdf)
Vilhjálmur Rafnsson prófessor: Faraldsfræðileg rök (pdf)
Baldur F. Sigfússon, yfirlæknir: Hópleit að brjóstakrabbameini (pdf)
Sjá nánar dagskrá málþingsins.
Uppfært 4. mars 2007