Flöguþekjukrabbamein
- Svæði útsett fyrir sól, andlit, háls, hendur.
- Mjög há lækningatíðni ef greint snemma, yfir 95%.
- Getur sáð sér í önnur líffæri og dreift sér sem meinvörp ef ekki meðhöndlað.
Hvernig lítur flöguþekjukrabbi út?
Birtist oftast sem rauður, hreistraður, upphleyptur eða vörtukenndur blettur. Algengustu svæði eru
andlit, eyru, varir og hendur.
Hverjir eru í mestri áhættu?
Þeir sem eru með ljósa húð og hafa verið mikið í sól yfir ævina. Meðalaldur við greiningu er um eða eftir 70 ár.
Meðferð og horfur:
Oftast meðhöndlað með skurðaðgerð en stöku sinnum með frystingu eða geislameðferð.
Mjög vel gengur að lækna slík krabbemein ef æxlið greinist og er meðhöndlað snemma. Ólíkt grunnfrumkrabba getur flöguþekjukrabbi sáð sér í önnur líffæri ef æxlið greinist ekki snemma.
Þessar upplýsingar voru fyrst birtar sem Hollráð á vef Landlæknisembættisins í mars 2000.
Uppfært 14. nóvember 2008