Grunnfrumukrabbamein
-
Er algengasta gerð húðkrabba, u.þ.b. 170 tilfelli á ári á Íslandi.
- Er í 90% tilfella á höfði, andliti, hálsi eða herðum.
- Lækningatíðni mjög há, yfir 95%.
Hverjir fá grunnfrumukrabba?
Algengastur hjá þeim sem hafa verið mikið í sól, t.d. vinna úti við.
Tíðnin vex með aldri.
Hvernig lítur grunnfrumukrabbi út?
Birtist oftast sem lítil, húðlituð, bleik eða rauðleit bóla eða blettur, stundum
örlítið hreistrað yfirborð
eða jafnvel grunnt sár í miðju. Þessi æxli vaxa
hægt. Oft hafa þau vaxið mánuðum og jafnvel árum saman áður en þau greinast, þar sem útlitið getur verið svolítið lúmskt
Meðferð og horfur:
Æxlin eru meðhöndluð með skurðaðgerð, brennslu eða frystingu. Þau eru auðlæknanleg. Grunnfrumkrabbamein eru staðbundin æxli, sem hafa litla sem enga tilhneigingu til þess að dreifa sér um líkamann sem meinvörp. Æxlið getur þó vaxið djúpt í húð að beini eða skemmt (nánast étið upp) t.d. nef eða eyra.
Þessar upplýsingar voru fyrst birtar sem Hollráð á vef Landlæknisembættisins í mars 2000.
Uppfært 14. nóvember 2008