Húðvernd

Spurningar og svör um húðina, sól og húðkrabbamein.


Húðkrabbamein er algengast allra krabbameina á Íslandi. Á hverju ári greinast rúmlega 200 tilfelli, og hefur tíðnin margfaldast á síðustu 20 árum. Slík þróun hefur átt sér stað víðast hvar í heiminum og er talað um "faraldur" í þessu sambandi.

Húðkrabbamein er að stórum hluta hægt að fyrirbyggja, og ef þau greinast snemma eru þau auðlæknanleg.

Þú getur haft veruleg áhrif á áhættu þína á húðkrabbameini, með því að verja húðina vel fyrir óæskilegri geislun og skoða húðina reglulega með tilliti til breytinga á blettum.

Óhófleg geislun á húðina getur valdið m.a. freknum, litabreytingum, öldrunarbreytingum, hrukkum, útvíkkuðum æðum, frumubreytingum og húðkrabbameinum.

Það skiptir geysilega miklu máli að verja börn vel fyrir sólinni, þar sem meirihluti þeirrar geislunar (u.þ.b. 80 %) sem fólk verður fyrir á ævinni er á fyrstu 20 árunum.

Hluta þeirra upplýsinga sem er að finna á neðantöldum síðum samdi Kristín Þórisdóttir, sérfræðingur í húðsjúkdómum, í tengslum við þemamánuð Landlæknisembættisins í mars 2000 og birtust greinarnar þá bæði í Morgunblaðinu og á vef embættisins. Síðan hafa bæst við fleiri greinar um skyld efni sem Hollráð um heilsuna og er þeim raðað eftir birtingardegi þeirra í Morgunblaðinu, þeim nýjustu efst.  

 11. mars 2007

Uppfært 14. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli