Saga heilbrigðisskýrslna

Margvísleg söfnun og úrvinnsla upplýsinga um heilbrigðismál hefur farið fram hjá Landlæknisembættinu allt frá öndverðu. Fram til ársins 1895 var venjan sú að yfirlitsskýrslur landlæknis voru sendar heilbrigðisyfirvöldum í Danmörku og útdráttur úr þeim birtur með heilbrigðisskýrslum Dana. Árið 1897 hófst útgáfa Heilbrigðisskýrslna þar sem tölur um heilbrigðismál hafa verið birtar æ síðan. Það ár var gefin út skýrsla fyrir árið 1896 og hafa verið gefnar út  Heilbrigðisskýrslur fyrir hvert ár eftir það, þótt oft hafi dráttur orðið á útgáfu og skýrslur fyrir nokkur ár verið gefnar út í einu riti.

Fyrstu árin og áratugina voru útdrættir úr skýrslum héraðslækna fyrirferðamestir í Heilbrigðisskýrslum þar sem birtar voru lýsingar á heilsufari í hverju héraði á árinu. Gangi farsótta var lýst mjög nákvæmlega, til hvaða aðgerða var gripið og greint frá ónæmisaðgerðum ef því var að skipta. Þá var einnig fjallað um heilbrigðisstarfsfólk og stofnanir, meðferð ungbarna, skólaheilsugæslu og aðbúnað fólks, t.d. húsakynni og þrifnað. Á hverju ári voru jafnframt birtar tölur um tilkynnta smitsjúkdóma frá hverju læknishéraði.

Eins og við er að búast hafa Heilbrigðisskýrslur tekið nokkrum breytingum á þeim liðlega 100 árum sem þær hafa verið gefnar út en gildi þeirra felst meðal annars í því að meginflokkar upplýsinga hafa haldið sér og ýmsar af megintöflum ritsins hafa haldist lítið breyttar allan þennan tíma. Ritað mál í skýrslunum hefur hins vegar tekið umtalsverðum breytingum. Er fram liðu stundir varð minna tekið óbreytt úr skýrslum héraðslækna og almennar lýsingar á heilsufari í hverju héraði hurfu smám saman. Á tímabili voru nær eingöngu birtar tölulegar upplýsingar í Heilbrigðisskýrslum.

Innihald Heilbrigðisskýrslna var endurskoðað árið 1989 með það fyrir augum að aðlaga þær breyttu þjóðfélagi og heilbrigðiskerfi. Frá 1989 hafa Heilbrigðisskýrslur í raun verið tvískiptar. Í fyrri hluta bókarinnar hafa verið 7 meginkaflar þar sem fjallað er um heilsufar og heilbrigðismál í texta og tölum. Í síðari hluta bókarinnar eru eingöngu töflur sem innihalda tölulegar upplýsingar samkvæmt sömu meginköflum.

Frá 1995 hefur verið lögð áhersla að að birta talnaefni Heilbrigðisskýrslna á upplýsingavef Landlæknisembættisins þegar vinnslu við hvern efnisflokk er lokið. Á næstum árum er jafnframt ráðgert að gefa Heilbrigðisskýrslur út í bókaformi á nokkurra ára fresti þar sem fjallað verður um stöðu og þróun í heilbrigðismálum.

Sjá nánar: Heilbrigðistölfræði
 

Uppfært 23. desember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli