Mataræði - þyngdin
| |
Nútímalæknavísindi hafa með ítarlegum rannsóknum sýnt fram á að til þess að varðveita heilsu sína þarf fólk að gæta að því hvað það leggur sér til munns og fá næga og holla hreyfingu. Þetta tvennt helst í hendur. Mataræði og regluleg hreyfing eru hvorttveggja þættir sem fólk getur sjálft ráðið miklu um og þannig haft jákvæð áhrif á eigið heilsufar.
Af þessum sökum voru mataræði og hreyfing fyrsta viðfangsefnið á dagskrá hvatningar- og fræðsluverkefnis Landlæknisembættisins sem hóf göngu sína í ársbyrjun 2002 og hefur staðið óslitið síðan. Verkefnið fór af stað með átaki í samstarfi við Manneldisráð, sem nú er eitt af sérfræðiráðum Lýðheilsustöðvar, Sjúkraþjálfunarskor Háskóla Íslands, Ísland á iði 2002 og Íþróttafræðasetur Kennaraháskóla Íslands á Laugarvatni og var þá m.a. haldin ráðstefna um hreyfingarleysi og offitu á Hótel Loftleiðum 21. mars 2002.
Margs konar fróðleikur um áhrif mataræðis og hreyfingar á líðan og heilsu hefur safnast upp á undanförnum árum á vefsíðum þessum. Við endurskoðun vefsetursins í ársbyrjun 2007 var ákveðið að skipta greinum um þessi efni í tvo efnisflokka til hægðarauka, undir heitunum Mataræði og þyngdin annars vegar og hins vegar Hreyfing.
Greinarnar hafa birst í vikulegum pistlum á síðum Morgunblaðsins, þær elstu birtust sem Hollráð á þemamánuðum Landlæknisembættisins árið 2000. Greinunum er raðað hér fyrir neðan í tímaröð eftir birtingu þeirra í Morgunblaðinu, þeim nýjustu efst.
- Hátíðamaturinn. 6. desember 2006
- Ekki fara megrun - breyttu um lifsstíl. 16. janúar 2006
- Ávextir og grænmeti - daglegur kostur skólabarna. 17. október 2005
- Megrunarkúrar. 16. september 2005
- Ber - náttúruleg hollusta. 22. ágúst 2005
- E-vítamín í stórum skömmtum. 24. maí 2005
- Lífselexír, er hann til? 16. apríl 2005
- Blöndun bætiefna í matvæli - kostir og gallar. 11. apríl 2005
- Matur og meðganga. 27. nóvember 2004
- Fólasín er nauðsynlegt fyrir konur á barnaeignaraldri. 12. nóvember 2004
- Næring og hreyfing barna. 23. október 2004
- Offita, líðan og hugarfar. 15. maí 2004
- Sjúkleg holdafarsdýrkun. 7. janúar 2004
- Átröskun og ofurkröfur. 26. nóvember 2003
- Átröskun - hvað er til ráða? 19. nóvember 2003
- Átröskun - samfélagsvandi. 12. nóvember 2003
- Fæðubótarefni ekki rétta leiðin. 2. nóvember 2002
- Þörf fyrir prótein? 26. október 2002
- Offita og heilsufar barna. 17. ágúst 2002
- Grænmeti er hollt. 10. ágúst 2002
- Borðum hollan mat. 13. apríl 2002
- Offita - ofeldi. Maí 2000
- Þyngdin. Maí 2000
Aðrir vefir:
Lýðheilsustöð
Hjartavernd
Uppfært 14. nóvember 2008