Sjálfvirk rafstuðstæki

Notkun sjálfvirkra hjartarafstuðstækja utan sjúkrahúsa
Hjartastopp er í meirihluta tilfella vegna lífshættulegra hraðtakta frá sleglum sem eru  neðri hólf hjartans. Oftast nær er rafstuð á brjóstkassa eina raunhæfa meðferðin við slíku. Þessa meðferð er hinsvegar eingöngu hægt að veita á sjúkrahúsi eða af sérþjálfuðum sjúkrflutningsmönnum.

Nýlega hafa komið á markað hjartarafstuðstæki sem eru sjálfvirk og henta þannig til notkunar af öðrum en heilbrigðisstarfsfólki. Þessi sjálfvirku hjartarafstuðstæki eru lítil og handhæg tæki með innbyggt forrit til að greina hjartsláttartruflanir með talsverðri nákvæmni. Tækin eru tengd við brjósthol sjúklings með álímdum rafskautum. Þau geta ýmist gefið rafstuð, ef um hættulegan sleglahraðtakt er að ræða, eða gefið fyrirmæli um að viðstaddir ýti á þar til gerðan takka á tækinu til að gefa rafstuð.

Þessi sjálfvirku hjartarafstuðstæki eru einföld í notkun og þeim fylgja skýringarmyndir auk þess sem talaðar leiðbeiningar koma frá tækinu. Þau skal nota ef fólk verður vitni að hjartastoppi eða skyndilegu meðvitundarleysi eða kemur að einstaklingi sem er meðvitundarlaus. Ef tækið greinir ekki takttruflun þá aðhefst það ekkert og óréttmæt rafstuð eru afar fátíð.

Fleiri lifa eftir hjartastopp
Sjálfvirk hjartarafstuðstæki hafa verið í notkun erlendis um nokkurra ára skeið og árangur af notkun þeirra hefur verið mjög góður, t.d.  um borð í farþegaflugvélum, á flugvöllum, í spilavítum, af lögreglu og af almenningi. Víða gefur tekist að tvöfalda eða þrefalda lifun eftir hjartastopp með notkun þeirra. Ekki er síður mikilvægt að þau hafa hvorki reynst valda skaða né hafa óæskileg áhrif, jafnvel þótt þau séu notuð af þeim sem litla eða enga þjálfun hafa í notkun þeirra.

Með hliðsjón af ofangreindu tekur Endurlífgunarráð tímabært að auka aðgengi að sjálfvirkum hjartarafstuðsgjöfum hérlendis. Fjölmargir staðir koma til greina þar sem staðsetja mætti slík tæki. Ráðið telur að það ætti að vera forgangsverkefni að koma slíkum tækjum fyrir í sjúkrabifreiðum þar sem ekki eru sérþjálfaðir sjúkraflutningsmenn, á sjúkrahúsum þar sem ekki er læknir til taks allan sólarhringinn og í lögreglubifreiðum í byggðarkjörnum þar sem engin sjúkrabifreið er nærtæk. Aðrir staðir sem koma til greina eru t.d. fjölmennir vinnustaðir utan þéttbýlis, flugstöðvar, farþegaflugvélar, langferðabifreiðar og e.t.v skip á miðum. 

Það er hinsvegar staðreynd að flest hjartastopp eiga sér stað í heimahúsum en rannsóknir liggja ekki fyrir á notkun þessara tækja þar. Á þessu stigi máls getur ráðið því ekki mælt með notkun sjálfvirkra rafstuðsgjafa í heimahúsum þó þetta kunni að breytast ef framtíðarrannsóknir sýna fram á ávinning af því.

Þjálfun er ekki skilyrði
Víða erlendis, þar sem sjálfvirk hjartarafstuðstæki eru á vinnustöðum, er viss hópur starfsfólks þjálfaður í notkun þeirra. Æskilegt að allir sem gætu þurft að nota sjálfvirk hjartarafstuðstæki vegna atvinnu sinnar hafi hlotið formlega kennslu í notkun þeirra. Ekki er þó talið rétt að banna hinum, sem ekki hafa fengið kennslu, að nota slík tæki í neyð því að þau eru einföld í notkun og þeim fylgja ítarlegar notkunarleiðbeiningar. Það gæti bjargar mannslífi undir ákveðnum kringumstæðum. Það skal tekið skýrt fram að mjög litlar líkur eru á að valda skaða með notkun þeirra. 

Endurlífgunarráð mælir með því að sjálfvirk hjartarafstuðstæki verði notuð utan sjúkrahúsa hérlendis. Þetta er enn einn liðurinn í að bæta árangur af endurlífgun utan sjúkrahúsa og rökrétt framhald af kynnigu ráðsins á síðasta ári á einfaldari  framkvæmd endurlífgunar fyrir almenning undir kjörorðunum Hringja - hnoða.

Davíð O. Arnar
formaður Endurlífgunarráðs

Birtist í Mbl. 5. nóvember 2003

Engin ein orsök er fyrir kransæðasjúkdómi, þar koma alltaf til margir samverkandi þættir, svokallaðir áhættuþættir. Hver og ein kona getur minnkað líkurnar á kransæðasjúkdómi og bætt heilsu sína á markvissan hátt með því að:

  • reykja ekki og dvelja í reyklausu umhverfi
  • láta mæla blóðþrýsting reglulega
  • borða heilsusamlegt og fjölbreytt fæði
  • halda kjörþyngd
  • stunda reglulega hreyfingu

Sjá einnig
Erindi Davíðs O. Arnar
flutt á kynningarfundi í LSH 4. nóv. 2003


Notkun sjálfvirkra hjartarafstuðstækja utan sjúkrahúsa á Íslandi
Greinargerð endurlífgunarráðs frá 2003

Uppfært 6. nóvember 2008

 



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli