Hjartað

 Hjarta
Rannsóknir Hjartaverndar sýna að frá 1981-2001 lækkaði dánartíðni karla á aldrinum 25-74 ára vegna kransæðastíflu um 69%, en kvenna á sama aldri um 56%.

Nýgengi
(þ.e. tíðni nýrra tilfella) lækkaði álíka mikið og mest í yngstu aldursflokkunum. Þannig hefur dánartíðni og nýgengi kransæðastíflu meðal karla yngri en 40 ára lækkaði um meira en 70%.  

Heildartíðni kransæðastíflu (ný og endurtekin tilfelli) hefur lækkað um 55% hjá körlum og um 51% hjá konum. Þess ber að geta að hjarta- og æðasjúkdómar eru mun fátíðari meðal kvenna en karla fram að tíðahvörfum en eftir þau minnkar munur á milli kynja.
(Heimild: Tímaritið HJARTAVERND, 39.árg, 1.tbl. des. 2004, bls.11)

Landlæknisembættið leggur áherslu á forvarnir hjarta- og æðasjúkdóma og þá einkum með tilliti til þess hvernig fólk getur með stuðningi heilbrigðisstarfsfólks og annarra unnið gegn áhættuþáttum þeirra.




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli