Þunglyndi og framhaldsskólinn

Unglingsárin eru mikilvægur umbrotatími í þroskaferlinu þar sem línur eru lagðar að heilsu og velferð einstaklingsins. Margir unglingar upplifa auknar kröfur í námi og ýmsar aðrar breytingar á lífsháttum sem geta valdið tímabundnum tilfinningalegum eða sálrænum erfiðleikum. Þar má nefna þunglyndi en það getur haft í för með sér skerta starfsorku nemandans sem leiðir til erfiðleika í námi.

Börn og unglingar sem eru þunglynd eiga oft erfiða daga í skólanum. Mörg þeirra hafa lítið sjálfstraust og litla trú á eigin getu. Því er mikilvægt í framhaldsskólanum að skólaumhverfið ýti undir góða sjálfsmynd óöruggra og þunglyndra nemenda. Byggja þarf upp traust og trú þeirra á eigin getu og hæfileikum og eins að finna leiðir til að koma til móts við þarfir þeirra. Til þess að slíkt megi verða skiptir miklu máli að allt starfsfólk skóla og nemendur fái fræðslu um einkenni þunglyndis og hvar nemendur geti leitað hjálpar fyrir sjálfa sig og aðra. Þannig má draga úr streitu og stuðla að jákvæðara umhverfi fyrir alla í skólanum.  

Þjóð gegn þunglyndi
Fræðslu- og forvarnaverkefnið Þjóð gegn þunglyndi er samstarfsverkefni á vegum Landlæknisembættisins. Því er ætlað að stuðla að slíku upplýsinga- og kynningarstarfi á næstu árum til að gera greiningu og meðferð þunglyndis skilvirkari og ná fram öflugu samstarfi í þjóðfélaginu og vitundarvakningu. Þunglyndi er stærsti áhættuþáttur sjálfsvíga og með því að bregðast fyrr við því má draga úr sjálfsvígum og sjálfsvígstilraunum.

Þegar nemandi hefur alvarleg sálræn vandamál og sjúkdóma á borð við þunglyndi þá þarf starfsfólk skóla, sem sinnir ráðgjöf við nemendur, foreldra og kennara, að ráðfæra sig við eða vísa til sérfræðinga, t.d. heimilislækna, geðlækna og sálfræðinga. Brýnt er að tryggja starfsfólki skólakerfisins greiðan aðgang að sérfræðiþjónustu þar sem sérfræðingar á ýmsum sviðum starfa saman  sem þverfaglegt teymi undir einu þaki við úrlausn mála.

 

Þunglyndi er einn algengasti geðræni sjúkdómurinn. Það byrjar oft snemma á ævinni og geta því árvökul augu skólafólks og kunnátta stuðlað að því að fljótt verði brugðist við. Með því má draga úr óþarfa þjáningu og tryggja nemendum óskerta vinnugetu og sjálfstraust.

 

Ágústa Elín Ingþórsdóttir

námsráðgjafi Borgarholtsskóla

  Birtist í Mbl. 14. júní 2003

 

Uppfært 6. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli