Þunglyndi er engin ímyndun
Á Íslandi þjást að minnsta kosti 12.000-15.000 manns af þunglyndi á hverjum tíma. Þótt þunglyndi sé mjög algengt gerir fólk almennt sér litla grein fyrir eðli sjúkdómsins og þar gætir oft misskilnings. Þunglyndi er ekki merki um dugleysi, heldur algengur og oft lífshættulegur sjúkdómur sem oftast er hægt að ráða bót á.
Fólk veikist oft af þunglyndi mitt í dagsins önn. Stundum er erfitt að greina það frá venjulegri óánægju eða kreppu í einkalífinu. Fyrst heldur einstaklingurinn og læknir oft að veikindin séu líkamleg. Með ítarlegum spurningum fæst þó yfirleitt örugg greining. Það er afar mikilvægt því að langflestir sem þjást af þunglyndi geta fengið áhrifaríka meðferð . Ef þunglyndið greinist ekki leiðir það til óþarfra þjáninga og jafnvel sjálfsvígshættu.
Oft fær fólk þunglyndi eftir mikið álag, til dæmis eftir ástvinamissi eða langvarandi ofreynslu. En það getur líka komið eins og þruma úr heiðskíru lofti. Margir ganga aðeins í gegnum eitt þunglyndisskeið um ævina, sem getur tekið vikur eða mánuði, en hjá öðrum tekur þunglyndið sig upp aftur og aftur. Sumum hættir einkum við þunglyndi í skammdeginu.
Þeir sem veikjast af þunglyndi fá ekki allir sömu einkennin. Dapurleiki og vonleysi eru ekki alltaf mest áberandi. Sumir finna mest fyrir framtaksleysi og deyfð, aðrir verða eirðarlausir. Önnur algeng einkenni eru svefntruflanir og margs konar líkamlegir kvillar. Margir finna fyrir tómleika og tilfinningadeyfð, eiga erfitt með að einbeita sér eða eru þjakaðir kvíða eða ótta. Veikin leggst misjafnlega þungt á fólk en getur lamað allt daglegt líf. Ættingjar og vinir eru oft ráðalausir, börn og makar líða fyrir ástandið og því er mikilvægt að grípa sem fyrst inn í sjúkdómsferlið.
Þunglyndi batnar langoftast við meðferð
Núorðið eru til árangursríkar aðferðir til að ráða bót á þunglyndi. Með samtalsmeðferð og lyfjagjöf er hægt að veita mjög áhrifaríka meðferð.
Mikilvægt:
Ef þú ert í vafa um hvort þú þjáist af þunglyndi skaltu leita til heilsugæslunnar þinnar, bráðamóttöku geðdeilda eða til sjálfstætt starfandi sérfræðinga.
Heldur einu sinni of oft, en of sjaldan.
Samantekt:
Salbjörg Bjarnadóttir
geðhjúkrunarfræðingur og verkefnisstjóri
Birtist í Mbl. 7. júní 2003
Uppfært 6. nóvember 2008