Hjálparsími Rauða krossins

1717 - Hjálparsími Rauða krossins

Ef á þig sækir kvíði, þunglyndi  eða sjálfsvígshugsanir

Tekinn er til starfa Hjálparsími Rauða krossins, með símanúmerið 1717,  og er hann opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa aðstoð vegna depurðar, kvíða, þunglyndis eða sjálfsvígshugsana. Þangað geta allir leitað, ungir sem gamlir, þegar sálræn vandamál virðast þeim um megn.  Hjálparsíminn tekur við af Trúnaðarsímanum sem hefur verið rekinn síðastliðinn áratug fyrir ungt fólk sérstaklega.

Rauði kross Íslands, Landlæknisembættið, Neyðarlínan og geðsvið Landspítala ? háskólasjúkrahúss hafa gert samkomulag um að reka Hjálparsímann. Starfsmenn og sjálfboðaliðar Rauðakrosshússins, sem er athvarf Rauða krossins fyrir börn og unglinga í vanda, svara í Hjálparsímann. Þeir búa að áralangri reynslu við að svara slíkum símtölum og munu fá reglulega þjálfun í samvinnu við geðsvið Landsspítala háskólasjúkrahúss og Landlæknisembættið.

Landlæknir áætlar að gerðar séu um 500 sjálfsvígstilraunir á ári hér á landi. Hjálparsíma Rauðakrossins er ætlað forvarnarhlutverk sem felst í því að taka við símtölum fólks með sjálfsvígshugsanir og veita eins konar sálræna skyndihjálp. Einnig er gert ráð fyrir að aðstandendur fólks með slíkar hugsanir, þeirra sem hafa gert sjálfsvígstilraunir og, ekki síst, þeirra sem hafa svipt sig lífi geti nýtt sér þjónustuna.

Samkvæmt könnunum eru margir þeirra sem gera tilraun til sjálfsvígs í raun ekki tilbúnir til að deyja en hafa, af ýmsum ástæðum, glatað viljanum til að lifa.  Vonir standa til að þeir sem þannig er ástatt um líti á Hjálparsímann sem valkost og að tilkoma þessarar þjónustu verði til að lækka tíðni sjálfsvígstilrauna.

Síminn er aðalstyrktaraðili Hjálparsíma Rauða krossins samkvæmt samkomulagi sem Síminn og Rauði kross Íslands hafa undirritað og gildir til ársloka 2004.  Auk Símans hafa Íslandssími og Tal ákveðið að gefa eftir gjald vegna símtala í 1717. Allar hringingar í 1717 verða því gjaldfrjálsar fyrir þá sem hringja.

Haukur Hauksson
Unglingafulltrúi í Rauðakrosshúsinu

Birtist í Mbl. 30. nóvember 2002

Uppfært 6. nóvember 2008




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli