Stöðunefnd

Með lögum um heilbrigðisþjónustu nr 40/2007, sem gengu í gildi 1. september 2007, varð sú breyting (skv. 35. grein) að stöðunefnd skal aðeins fjalla um faglega hæfni umsækjenda um stöður framkvæmdastjóra lækninga og annarra stjórnenda lækninga á heilbrigðisstofnunum sem ríkið rekur.

 

Samkvæmt núgildandi lögum tilnefnir landlæknir einn nefndarmann, sem er formaður nefndarinnar, og varamann hans, en í eldri lögum átti landlæknir sjálfkrafa sæti í nefndinni sem formaður hennar. Eftir sem áður tilnefna læknadeild Háskóla Íslands og Læknafélag Íslands einn nefndarmann og varamann hvort.

Mikilvægt er að umsækjendur um stöðu noti sérstakt eyðublað sem er aðgengilegt á vef embættisins og fæst einnig á skrifstofu Landlæknisembættisins eða gefi a.m.k. sömu upplýsingar og þar er krafist. Umsækjandi skal senda með umsókn sinni staðfestingar á læknaprófum, lækningaleyfi, námsstöðum og læknisstöðum sem hann hefur gegnt. Mikilvægt er að umsókninni fylgi sérprent eða ljósrit af greinum sem hann hefur skrifað og birt. Þá er umsækjanda heimilt að senda inn meðmæli eða önnur gögn sem votta hvernig hann hefur staðið sig í starfi. Umsögn stöðunefndar byggist á innsendum gögnum.

Starfsreglur stöðunefndar eru i endurskoðun. Þar til henni er lokið gilda reglur frá febrúar 2004, sbr. Auglýsingu nr. 207/2004 í B-deild Stjórnartíðinda. Sjá: Starfsreglur stöðunefndar.

Í stöðunefnd sitja:

  • Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir, formaður
       Til vara:  Kristján Oddsson læknir, varaformaður 
  • Halldóra Ólafsdóttir geðlæknir, fulltrúi Læknafélags Íslands
       Til vara: Guðmundur J. Elíasson læknir
  • Þorvaldur Jónsson skurðlæknir, fulltrúi læknadeildar Háskóla Íslands
       Til vara: Bryndís Benediktsdóttir heimilislæknir 

 

Uppfært 26. maí 2010




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli