Fordómar
Vitundarvakning um fordóma
Landlæknisembættið og Geðrækt gengust fyrir vitundarvakningu um fordóma í samstarfi við fjölmörg samtök og stofnanir sem öll eiga það sameiginlegt að vilja vinna bug á fordómum. Vakningin, undir kjörorðinu Sleppum fordómum, var á dagskrá á vormánuðum 2002.
Aðrir sem að vitundarvakningunni stóðu voru: Alþjóðahúsið, Félag eldri borgara, Félagsþjónustan í Reykjavík, Heilsuefling í skólum, Hitt Húsið, Jafnréttisnefnd og Stúdentaráð Háskóla Íslands, Miðborgarstarf KFUM og K og Þjóðkirkjunnar, Rauði kross Íslands, Samtökin ´78 og Öryrkjabandalag Íslands.
Markmið vitundarvakningarinnar var að vekja athygli sem víðast í þjóðfélaginu á því sem býr að baki fordómum, hvernig fordómar birtast og hvað unnt er að gera til að losna undan oki þeirra. Ekki hvað síst var lögð áhersla á að hver og einn skoðaði eigin hug og velti fyrir sér spurningunni: „Er ég haldin(n) fordómum?“
Fjallað var um málefnið í föstum liðum Landlæknisembættins í Ríkisútvarpinu og Morgunblaðinu í nafni Heilsunnar í brennidepli, en auk þess var málefnið kynnt með margvíslegum hætti í öðrum fjölmiðlum. Greinunum hér fyrir neðan er raðað í tímaröð eftir birtingardegi þeirra á síðum Morgunblaðsins.
- Fordómar gegn fötluðum. 22. júní 2002
- Fjölbreytnin auðgar. 15. júní 2002
- Í viðjum þagnarinnar. 1. júní 2002
- Tvær hliðar. 11. maí 2002
- Að skoða eigin fordóma. 4. maí 2002
- Blásum þá burt. 27. apríl 2002
- Sleppum fordómum. 20. apríl 2002
Uppfært 6. nóvember 2008

