Ofvirkni
Af hverju stafar ofvirkni?
Rannsóknir benda til þess að erfðir eigi stærstan hlut að máli í orsökum ofvirkni. Röskun í taugaþroska veldur truflun í starfi boðefnakerfa sem stjórna atferli, og er það einkum hömlunarþátturinn í atferlisstjórn sem ekki starfar sem skyldi.
Breytast einkennin með aldri?
Ofvirknieinkennin koma snemma fram og um 3-4 ára aldurinn eru þau venjulega orðin nokkuð skýr, einkum hreyfiofvirknin. Athyglisbresturinn virðist koma fram síðar, eða um 5-7 ára aldurinn. Um 8-10 ára aldurinn fer oft að draga nokkuð úr hreyfiofvirkninni, en eftir sitja frekar athyglisbresturinn og hvatvísin. Um 70% þeirra sem greinast með ofvirkni í bernsku eigi enn við hana að stríða á unglingsárum.
Hvaða meðferð kemur að gagni?
Rannsóknir á árangri meðferðar sýna að tvenns konar úrræði gefast best, annars vegar lyfjameðferð og hins vegar atferlismótun.
Algengasta lyfið við ofvirkni er örvandi lyfið Ritalin, en einnig er algengt að nota ákveðnar tegundir þunglyndislyfja. Í atferlismótun er grundvallaratriði að styrkja vel aðlagaða hegðun með því að umbuna kerfisbundið fyrir æskilegt atferli, ekki síst með hrósi og jákvæðri athygli. Í slíkri meðferð er enn fremur leitast við að breyta uppeldisumhverfi barnsins til langframa. Þetta er gert með ráðgjöf við foreldra, m.a. með því að halda þjálfunarnámskeið fyrir þá þar sem viðeigandi uppeldisaðferðir eru kenndar. Kennarar þurfa á sama hátt að fá ráðgjöf um þær aðferðir sem beita má í skólanum.
Páll Magnússon
sálfræðingur
Birtist í Mbl 24. ágúst 2002
Ofangreindur pistill er stytt útgáfa lengri greinar. Smellið hér til að lesa greinina alla: Ofvirkni í bernsku
Ennfremur er fróðleik að finna á Doktor.is
Uppfært 5. nóvember 2008